Íslenskt skákblað - 15.05.1925, Side 10

Íslenskt skákblað - 15.05.1925, Side 10
4 ÍSLENSKT SKÁKBLAÐ Nú var hvatamönnum málsins hjer nyrðra og öðrum stuðn- ingsmönnum þess utan Reykjavíkur næsta hugleikið, að aðalfundir Sambandsins yrðu haldnir á víxl í landsfjórðungunum, en í sam- bandi við þá á Skákþing íslendinga að vera háð. Petla jafnræðis- ákvæði gat fáa grunað að myndi hafa þær afleiðingar í för með sjer, sem kunnar eru og að ofan getur. En þrátt fyrir það hikuðu 5 skákfjelög norðlensk eigi við, að halda málinu áfram, heldur stigu sporið alt og stofnuðu Sambandið, og er full ástæða til að ætla, að ekki geti liðið langur tími, þar til öll skákfjelög landsins hafa tekið höndum saman til öflugrar viðreisnar íslensku skáklífi. Með Sambandsstofnuninni er fenginn sá tengiliður einstaklinganna, sem skák unna víðsvegar á landi hjer, er mestur aflgjafi mun reynast skáklistinni á íslandi, og má vænta þess, að nú sje undirstaða fundin eðlilegri framþróun. En þá undirstöðu vantaði tilfinnanlega. Sig. Ein. Hlíðar. S K Á K ■ H E IMSMBIS T A R I N N . Petfa tignarnafn (»Campion of the World«) tók upp í fyrstu skákmeistarinn Wilhelm Steinitz (fæddur í Prag 18. maí 1836) um 1866, eítir að hann hafði sigrað í einvígi þrjá hina mestu skák- meistara þeirra tíma, þá Pjóðverjana Adolf Anderssen og J. H. Zukertort, og Englendinginn J. H. Blackburne. Varði Steinitz þessa tign í 28 ár í mörgum einvígum, þangað til Pjóðverjinn Emanuel Lasker sigraði hann 1894. Síðan hefir Lasker varið tignina í liðug 25 ár, eða þangað til í apríl 1921, að Cubamaðurinn Capablanca vann hana af honurn. — Pykir viðeigandi hjer, að lýsa stuttlega æfiferli hins nýja skák-heimsmeistara. José Raoul Capablanca y Oranperra er af gömlum spönskum höfðingjaættum kominn. Hann er fæddur í Habana á Cuba 19. nóv. 1888. Pegar á fyrstu barndómsárum (tæpl. 5 ára) fór að bera á skákgáfu hans, en foreldrum hans leist ekki á, að liann færi svo ungur að gefa sig að tafli, og var honum aðeins lílið eitt leyft að hafa skák um hönd fyr en á 13. ári. Pá fjekk hann tækifæri til að tefla við Celso Golmajo, skákmeistara á Cuba, einn af bestu skák- mönnum Ameríku. Gaf Golmajo honum í forgjöf fyrst lirók, síðan riddara, en eftir hálfan mánuð þólti honum ærið nóg, að gefa Capablanca eitt peð. Capablanca tefldi nú tíðum við bestu skákmennina í Habana og sigraði þá auðveldlega. Árið 1905 var Capablanca settur í

x

Íslenskt skákblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskt skákblað
https://timarit.is/publication/842

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.