Íslenskt skákblað - 15.05.1925, Blaðsíða 27
ÍSLENSKT SKÁKBLAÐ
21
Stórmeistarinn rússneski, Aljechin, tefldi 2. febrúar s. I. í París,
28 skákir blindandi (blindskákir) í einu. Skákirnar stóðu yfir 12
tíma og 40 mín. án uppihatds. Vann hann 22, tapaði 3 og gerði
3 jafnteíli. Setti hann með þessu heimsmet í þeirri íþrótt, að tefla
við marga í einu án þess að liorfa á skákborðin. En þetta heims-
met stóð þó ekki lengi, því að 5 döguni síðar, eða hinn 7. febrúar
setti austurríski stórmeistarinn R. Reti nýtt heimsmet í þessari íþrótt
í Sao Paulo í Brasilíu með því að iefla í einu 29 blindskákir. Vann
hann af þeim 20, tapaði 2 og gerði 7 jafntefli.
Á skákþingi 5 stórmeistara, sem háð var í Parísarborg nýlega,
vann Aljechin 1. verðlaun, náði 6'/2 vinningi (2 umgangar). Tarta-
kower varð næstur með 41/2 vinning.
í febrúar s. 1. háðu einvígi stórmeistarinn rússneski Bogoljubow
og Romanowsky, skákmeistari Rússlands. Vann Bogoljubow 5,
tapaði 1 og gerði 6 jafntefli.
Einnig háðu þeir einvígi nýlega, Spielmann og Svíinn Nilsson.
Vann Spielmann 3, tapaði 1 og gerði 1 jafntefli.
Einvígi ætla þeir að heyja bráðlega Dr. E. Lasker og próf. Dr.
Vidmar. Er tilætlun þeirra að tefla alls 10 skákir, 4 í Belgrað, 4 í
Laibach og 2 í Agram. Pykja þetta allmikil tíðindi sökum þess,
að Dr. Vidmar er nú talinn einn af bestu skákmönnum heimsins.
í lok maímánaðar verður haldið alþjóðaskákþing í Marienbad
í Tschekko-Slovakiu. Hefir bæjarstjórnin þar lagt fram 30 þúsund
tschekkískar krónur til verðlauna á þessu skákþingi. Er búist við
að margir stórmeistarar muni taka þátt í skákþinginu.
í október s. 1. gekst Skáksamband Stokkhólms og Dagens Ny-
heter fyrir forgjafa skákþingi miklu, sem mun vera einstakt í sinni
röð. Tefldu þar I. flokks skákmenn móti III. og IV. flokks-mönnum
og urðu þátttakendur 45ö. Forgjafirnar voru ærið miklar, því að
t. d. IV. flokks menn fengu hrók og riddara í forgjöf af 1. flokks-
mönnum. 74 verðlaun voru veitt á skákþinginu. — En þessu þingi
lauk svo, að forgjafaþiggjendur (III. og IV. flokkur) hlaut öll verð-
launin. Sá hjet B. Bergvall, sem vann fyrstu verðlaun, og var hann
úr IV. flokki, en 3 lll.-flokksmenn unnu næstu verðlaun. Dr. Karl
Olsen varð efstur af meistaraflokki, en náði þó engum verðlaunum.
Um fyrirkoniulag þessa skákþings er oss ekki fullkunnugt.