Íslenskt skákblað - 15.05.1925, Síða 28

Íslenskt skákblað - 15.05.1925, Síða 28
22 ÍSLENSKT SKÁKBLAÐ I n n 1 e n d . Símaskákir lefldi Skákíjelag Akureyrar vifl Taflfjelag Reykjavík- ur í vetur um nýársleylið, eins og að vanda. Voru þátttakendur nú II frá hvoiu fjelagi. Var byrjað að tefla um kl. 10 að kvöldi og entust fram að kl. 9 að morgni, með aðeins liálfrar stundar kaffi- hvíld um miðnætti. Fóru leikar þannig, að Skákfjelag Akureyrar hlaut 7V2 vinning móti 31/2 frá Taflljelagi Reykjavíkur. — Símaskákir rnilli þessara fjelaga liafa verið tíðkaðar um nýársleytið hvert ár síðan 1920 og verður nánar á þær minst í næsta hefti. Aðrar símaskákir tefldi Skákfjelag Akureyrar við Skákfjelag Sauð- árkróks um sumarmálaleytið. Frá hálfu Skákfjelags Akureyrar tefldu Il.-flokks-skákmenn aðeins. Hlutu þeir 51/2 vinning móti 2'h frá Skákfjelagi Sauðárkróks. Á skírdag í vor bauð Skákfjelag Hörgdælinga nokkrum skák- mönnum úr Skákfjelagi Akureyrar til skákmóts við sig. Fóru 5 fjelagar til mótsins (4 I.-flokks-menn og 1 Il.-flokks). Tefldu við þá 7 Hörgdælir. Leikslok urðu þau, að Akureyringar hlutu A'h vinning móti 2'h frá Hörgdælum. Hið árlega Skákþing íslands í Reykjavík er nýlega afstaðið og hófst 4. apríl síðastl. Nákvæmar frjettir af þinginu eru ekki komnar, þegar Skákblaðið er tilbúið í prentun. F>ó segir símfrjett úr Reykja- vík, að 5 keppendur hafi tekið þátt í því, 2 I.-flokks-menn, þeir Eggert Guðmundsson og Sigurður Jónsson, og 3 Il.-flokks menn, allir úr Taflfjelagi Reykjavíkur. Úrslit urðu þau, að E. Guðmunds- son og Sig. Jónsson urðu jafnir að vinningum. Keptu þeir síðan til úrslita og vann Eggert með 3 unnum skákum og 1 jafntefli. Síðastliðið ár dvaldi Eggert Guðmundsson í Kaupmannahöfn. Tefldi hann þar í »Köbenhavns Skakforening«, seni mun vera helsta skákfjelag í Danmörku. Var hann talinn með snjöllustu skákmönn- um I. flokks þar. — Sömuleiðis hefir landi vor, Brynjólfur Stef- ánsson, getið sjer ágætan orðstír í sama fjelagi. Tefldi hann þaf nýlega á skákþingi og varð jafnsnjall efsta manni. Tefldu þeir sam- an til úrslita þrjár skákir, og tapaði þá Brynjólfur 2 móti einni, segir símfrjett úr Reykjavík.

x

Íslenskt skákblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenskt skákblað
https://timarit.is/publication/842

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.