Íslenskt skákblað - 01.05.1926, Qupperneq 22
92
ISLENSKT SKÁKBLAÐ
hafa stofnað með sjer. Tilgangurinn með fjelagsskap þessum er
að senda út um heim allan þráðlaus loftskeyti um skák, skákfrjettir,
tefld töfl o. s. frv., er lítur að skák og er áliugaefni skákvina í
heiminum. Sambandinu hefir orðið mikið ágengt í þessa átt. Hefir
það meðal annars tekið við ritstjórn og keypt skáktímaritin »Woc-
henschack« og »SchwaIbe«. — Er þess væntandi, að íslendingar,
sem hafa góð móttökutæki þráðlausra skeyfa og áhuga hafa á skák,
reyni að setja sig í samband við »Funkschack«.
Nýlega er lokið meistaraskákþingi miklu í Semmering, nálægt
Vínarborg. Tefldu þar flestir stórmeistarar heimsins nema Capa-
blanca, Dr. Lasker og Bogoljubow. Hafði liinn síðastnefndi ætlað
að taka þátt í þessu skákþingi, en vegna ósamkomulags, er var
milli Rússlands og Austurríkis, neitaði sovjet-stjórn. Rússlands Bo-
goljubow þátttöku. Jafnvel hafði komið til orða, að Capablanca
tefldi þar líka, sem þó ekki varð. Úrslit þessa skákþings urðu þau,
að Spielmann hlaut I. verðlaun með 13 vinningum. Er nú langt
síðan Spielmann hefir náð fremstu sætum á skákþingum, og mun
það alment hafa verið álitið, að hann væri að dragast aftur úr. Hefir
hann stöðugt færst neðar og neðar í röð heimsmeistaranna. Hefir
hann ekki viljað viðurkenna hinn nýja skóla og álitið hann eins-
konar vindbólu, sem myndi hjaðna fyr en seinna. En það, að hann
hefir nú náð I. verðlaunum á þessu skákþingi, er ekki því að þakka,
að hann hafi gengið á hönd hinum nýja skóla, heldur hefir hann
lært að sigrast á skákaðferðum hans. Má búast við, að skenitilegt
verði að fylgjast með glímu hins nýja og gamla skóla á komandi
meistaraþingum, nái Spielmann að halda hitanum í keppendunum
þar, eins og hann gerði á meistaraþinginu í Semmering. — II. verð-
laun fjekk Aljechin með 121/2 vinning, III. verðlaun Vidmar með 12
vinninga, IV. og V. verðlaunum skiftu Niemzowitsch og Tartakower
með 11 vinningum hvor, VI. og VII. verðlaun Rubenstein og Dr.
Tarrasch með 10 vinningum hvor og VIII. verðlaun Réti með 91/2
vinning. Þingið sóttu alls 18 meistarar.
Rætt er nú allmikið um heimsmeistaratignina í erlendum skák-
blöðum og þá, er til mála komi að keppi um hana. Er það fiestra
álit, að heppilegast væri að stofna til skákþings milli þeirra, og eru
þá alment tilnefndir, auk heiinsmeistarans, þeir Dr. Lasker, Dr. Aljec-
hin og Bogoljubow. Er Dr. Lasker þessarar skoðunar. Aðrir hafa
stungið upp á því, að þeir Dr. Lasker og Capablanca reyni með
sjer sjerstaklega og Dr. Aljechin og Bogoljubow á öðru leyti, og