Eining - 01.03.1963, Blaðsíða 5
EINI NG
5
Einar Tömasson
sjötugur
Fáir mannkostir eru mikilvægari í
öllu félagslífi, og reyndar hvar sem er,
en staðfestan, trúmennskan og traust-
leikinn. Áhlaupamenn geta verið mjög
þarfir til átaka undir ýmsum kringum-
stæðum, en til þess að gefa öllu mann-
lífi nægilega kjölfestu og öryggi, er
staðfestan og hin óbrigðula trúmennska
flestu nauðsynlegri.
Einar Tómasson, fyrrv. kolakaup-
maður, sem átti sjötugsafmæli 18. febr-
úar s.l., er einmitt einn þessara traustu
manna, sem skipa sæti sitt vel og bregð-
ast ekki, og er þetta eitt hið bezta, sem
um menn verður sagt. Það er ró og festa
yfir öllu látbragði Einars, um hann
enginn taugaæsandi stormur né hávaði,
og um þessa rósemd hjartans vitnar
svipur hans.
Rúmlega 50 ár hefur hann verið einn
sinni, það mun hafa verið 1915, varð
stutt, en strax varð séra Sigtryggur
mér minnisstæður. Á árunum 1930 til
1940 kom ég svo oft að Núpi og flutti
marga fyrirlestra í skólanum þar. Þá
veittist mér það að kynnast þessum
frábæra mannkostamanni. Alla vildi
hann styðja, og þessu blaði sendi hann
stundum gjafir og hélt tryggð við það
til dauðadags. — Blessuð veri minning
hans. Hann unni sinni þjóð, unni sann-
leikanum, helgaði líf sitt hinum göf-
ugustu hugsjónum og helgustu trú.
Hann deyr ekki.
Pétur Sigurðsson.
af þessum ómetanlegu, traustu félög-
um góðtemplarareglunnar, víst alltaf
félagi stúkunnar Einingarinnar nr. 14
í Reykjavík, og við hlið hans var þar
jafnan hans ágæta kona, Ragnhildur
Jónsdóttir, Einars Jónssonar, prentara.
Hjúskap hófu þau Einar og Ragnhildur
árið 1917 og vissulega áttu þau erindi
saman, því að börn þeirra eru 11, öll á
lífi við góða heilsu og góða líðan. Einar
Tómasson hefur verið gæfumaður og
hann hefur gert heilan hóp sveina ham-
ingjusama með því að gefa burt 9 dæt-
ur sínar, hreppti sonur minn eina þeirra,
sem þegar er búin að fæða honum sjö
syni, hvað sem meira verður, um það
vil ég ekki gerast neinn spámaður.
Bindindisstarfið hefur ávallt verið á-
hugamál Einars Tómassonar. Hann er
nú heiðursfélagi í stúku sinni. Gaman
hefur Einari þótt að innlífa sig frí-
merkjasöfnun og mun vera allvel að sér
í þeirri grein. Þá er hann slingur veiði-
maður, þykir gaman að fást við laxinn
og hefur iðkað það um áratugi. Hann
hefur hlotið verðlaun og heiðursmerki
fyrir heppni og snillimennsku við lax-
veiðarnar, en mest hrós á Einar skilið
fyrir þegnskap og það hversdagslíf,
sem einna bezt tryggir heill hverrar
þjóðar.
Við erum margir reglubræður hans,
sem samfögnum honum yfir heillaríkri
ævigöngu fram á sjötugasta afmælis-
daginn, óskum honum allrar blessunar
á komandi dögum og þökkum góða lið-
veizlu hans í félagsstarfinu.
Pétur Sigurðsson.
[=]
40 ára: Barnastúkan Eyrarrós
í Siglufiröi
Þetta er ein albezta og merkasta
barnastúka landsins. Hún var stofnuð
14. janúar 1923 og hefur starfað mjög
vel síðan til mikilla þrifa og velfarnaðar
siglfirzkum æskulýð. Stundum verið
fjölmennasta barnastúka landsins.
Lengst af hafa þrjár valdar konur ver-
ið gæzlumenn hennar. Fyrst sú, sem var
aðalhvatamaður að stofnun stúkunnar,
Frú Guðrún Jónsdóttir, þá frú Kristín
Þorsteinsdóttir, og svo fram að því síð-
asta um 26 eða 27 ára skeið, frú Þóra
Jónsdóttir. Óhætt mun að fullyrða að
þessar ágætu konur hafi með þessu
starfi, unnið mikilvægt uppeldisstarf.
Þetta er einmitt hið mikilvægasta á-
fengisvarnastarf, sem oft gleymist að
þakka, sem vera ber, þótt hinum sé
sungið lof, sem reyna að draga nokkra
af auðnuleysingjunum upp úr foraðinu,
sem Áfengisverzlun ríkisins hryndir út
í það.
Eftirtektarvert er það, hve margir
unglingar 14 ára og eldri eru í stúk-
unni, og skiptast þeir þannig:
Stúlkur yngri en 14 ára...... 123
Drengir yngri en 14 ára...... 82
Stúlkur eldri en 14 ára...... 107
Drengir eldri en 14 ára...... 56
Fulltíða félagar (þ. e. 14 ára og
eldri), sem eru líka í undirstúku, eru
80. Alls eru félagar barnastúkunnar 368.
Og enn er valið fólk gæzlumenn stúk-
unnar. Aðalgæzlumaður, Jóhann Þor-
valdsson, kennari, margreyndur og á-
gætur liðsmaður bindindisstarfsins, og
aðstoðargæzlumaður, frú Kristín Gunn-
laugsdóttir. Happ er það þjóðinni, þeg-
ar hinir æskilegu leiðbeinendur gerast
leiðsögumenn uppvaxandi æskumanna.
Prýði þessi Eyrarrós sem lengst
Sigluf j arðareyri.
i=i
Tölurnar hækka
Árið 1962 varð áfengissalan í land-
inu tæpar 236 milljónir króna, 36,5
milljónum króna meiri en árið 1961 og
er það aðallega verðhækkun, sem kem-
ur hér til greina. Magn áfengisneyzl-
unnar á mann var rúmlega 1,8 lítri ár-
ið 1962, en rúmlega 1,6 árið áður. Er
þessi aukning því töluverð og meiri en
hún hefur verið undanfarin ár. Vafa-
laust er það velgengnin, fjölgun vínveit-
ingahúsanna og svo ill tízka, sem veld-
ur þessari meinþróun í áfengismálum
þjóðarinnar og er það slæm niðurstaða.
Leyni-innflutningur og sala er senni-
lega ekki meiri nú en verið hefur und-
anfarin ár, en farsælast væri það allri
þjóðinn, ef tölurnar gætu farið að hall-
ast á hinn bóginn, færast jafnt og þétt
niður á við. Það myndi vitna um menn-
ingu og vaxandi siðferðisþroska manna.
í Noregi seldi ríkiseinkasalan áfenga
drykki árið, sem leið, fyrir næstum 600
milljónir norskra króna, en árið áður
var salan 573 milljónir kr. Salan s.l.
ár nálgast því fjögur þúsund milljónir
ísl. króna.