Okkar á milli - 01.12.1988, Qupperneq 3
Tilviljun réð því að ég hélt lífi
- segir Jerzy Kosinsky,
höfundur Skræpótta fuglsins
Höfundur Skræpótta fuglsins,
Jerzy Kosinsky hefur skrifað
langa frásögn um bók sína, þar
sem hann skýrir m.a. frá því
hvernig hún varð til og lýsir við-
brögðum fólks við henni eftir að
hún kom út. Hér á eftir verður
gripið niður í þessa athyglis-
verðu ritsmíð á örfáum stöðum,
en hún er birt í heild aftan við
söguna í íslensku útgáfunni.
Þúsundir barna
létust
Þegar ég kom til Bandaríkj-
anna, var ég staðráðinn í að
stíga þaðan í frá aldrei fæti á
landið (Pólland) þar sem ég
hafði dvalið stríðsárin. Tilviljun
einber réð því að ég hélt lífi, og
alltaf hafði níst mig vitneskjan
um hundruð þúsunda annarra
barna sem látist höfðu...
„Þeir tattórvera alla jafnóðum
og þeir koma,“ skrifaði gyðing-
ur í fangabúðum stuttu fyrir
dauða sinn í gasklefanum.
„Sérhverfærsittnúmer. Fráþví
augnabliki hefur þú glatað sjálfi
þínu og.hefur breyst í númer...
Heilar okkar eru orðnir sljóir,
hugsanirnar eru takmarkaðar:
Þetta nýja mál veröur ekki skil-
ið...“
Tilgangur minn með því að
semja skáldsögu var að rann-
saka „þetta nýja mál“ hrotta-
skaþarins og óhjákvæmilega
andstæðu þess, mál angistar
og örvæntingar...
Hræöileg sjón
Þeir sem kusu að líta á bókina
sem sögulegt skáldverk hefðu
sem hægast getað vitnað í
raunverulegan efnivið. Engir
virtust hins vegar hafa gefið sér
tíma til að lesa tiltæka vitnis-
burði svo sem framburð nítján
ára stúlku sem lýsir hefndarráð-
stöfunum sem austurevrópskt
þorp mátti þola fyrir að hafa
skotið skjólshúsi yfir óvin þýska
ríkisins.
„Það var hræðileg sjón sem
máist ekki úr huga mínum ævi-
langt“, skrifar hún. „Eftir að
þorpið hafði verið umkringt tóku
þeir að nauðga konunum, síð-
an var gefin skipun um að
brenna það ásamt öllum íbúun-
um. Þessir trylltu villimenn
æddu að húsunum með eldi-
branda og þeir sem hlupu frá
Bók mánaðarins
Fullt verð: 1.890 kr.
Okkar verð: 1.490 kr.
Bókin var síðast prentuð 1976
og hefur ekki verið fáanleg síð-
an og. mun ekki fara á almenn-
an markaðfyrir jólin.
voru skotnir eða hraktir aftur inn
í eldinn. Lítil börn voru þrifin frá
mæðrum sínum og fleygt á bál-
in...“
Aðeins þrír lifðu
Besta sönnun þess að ég var
ekki að ýkja hrottaskapinn og
grimmdina sem einkenndi
stríðsárin í Austur-Evrópu var
ef til vill sú, að gamlir skólafé-
lagar mínir skrifuðu mér og
töldu söguna barnabók í sam-
anburði við lífsreynslu þeirra
sjálfra...
Árið 1938 komu sextíu skyld-
menni mín saman á síöasta ár-
lega ættarmót sitt. Meðal þeirra
voru mikilsmetnir menningar-
frömuðir, læknar, lögfræðingar
og fjármálamenn. Af þessum
fjölda lifðu aðeins þrír styrjald-
arlokin...
OKKAR AMILLI
3