Okkar á milli - 01.12.1988, Side 8
Nr.: 2296
Fullt verð: 1.494 kr.
Okkarverö: 1.150 kr.
Nr.: 2297
Fulltverð: 1.156 kr.
Okkar verð: 925 kr.
Nr.: 2398
Fullt verð: 1.494 kr.
Okkarverð: 1.150 kr.
Dansað á
ystu nöf hins
mögulega
Áttunda fórnarlambið er fimmta
skáldsaga Birgittu H. Halldórs-
dóttur, en áður hafa komið frá
hennar hendi sögurnar Inga,
Háski á Hveravöllum, Gættu
þín Helga og i greipum elds og
ótta. Lesendahópur Birgittu fer
sívaxandi, enda er ritfærni
hennar ótvíræð og frásagnar-
gleðin mikil.
Sagan gerist í Reykjavík og á
Vesturlandi, og eins og í fyrri
sögum Birgittu blómstrar ástin
hjá sögupersónunum. En það
er ekki friðsamlegt í kringum þá
ástarelda. Hvað eftir annað er
lífsdansinn stiginn á ystu nöf
hins mögulega, þar sem enginn
fær séð hvort framundan er líf
eða dauði. Unnendur spennu-
bóka, sem fjalla um ástir og af-
brot, fá hér góða sögu í hendur,
þar sem byggt er á íslenskri
hugsun og aðstæðum.
ífallvöltum
draumaheimi
Hollywood
Skáldsagan Allt fyrir þig er eftir
Danielle Steel, en hún er í
fremstu röð þeirra sem nú skrifa
fjölskyldu- og ástarsögur. Bæk-
ur hennar seljast í milljónum
eintaka og eru í efstu sætum
metsölulista í Evrópu og Ame-
ríku. Þetta er sjöunda bókin eftir
Daniellu Steel, sem kemur út á
íslensku.
Aðalpersóna sögunnar er ein
efnilegasta leikkona í Holly-
wood. Hún giftist glæsilegum
milljónaerfingja og líf hennar
tekur algjörum stakkaskiptum.
Hún leggur leiklistina á hilluna
og helgar líf sitt manni og börn-
um. En skyndilega verðurmað-
ur hennar gjaldþrota og skilur
hana eina eftir með fimm börn.
Þetta er saga af ólíkum ein-
staklingum, sem verða að tak-
ast á við raunveruleikann í fall-
völtum draumaheimi Holly-
wood.
Saga af tveim
nútímakonum
á f ramabraut
Skáldsagan / skugga skelfing-
ar er eftir Mary Higgins Clark,
en áður hafa komið út á ís-
lensku eftir þann höfund sög-
urnar Hvar eru börnin og Viðsjál
er vagga lífsins. Allar þessar
bækur hafa hlotið einróma lof
þeirra sem lesið hafa, enda vel
skrifaðar og spennandi.
Söguhetjan er ung kona sem er
sjónvarpsfréttamaður og hefur
tekið að sér að gera þátt um
öldungadeildarþingkonu sem
sækist eftir embætti varafor-
seta Bandaríkjanna. Þegar far-
ið er að grafast fyrir um fortíð
hinnar mikilsvirtu þingkonu,
kemur sitthvað óvænt og
ískyggilegt fram í dagsljósið. í
sögunni fléttast saman undar-
leg og ógnvekjandi örlög þess-
ara tveggja kvenna á þann hátt,
að erfitt er að leggja bókina frá
sér fyrr en hún hefur verið lesin
til enda.
8
OKKAR Á MILLI