Leo - 01.12.2003, Blaðsíða 24
24
Lionsklúbburinn HÆNGUR 30 ára
emmjtim
f
ícá Jiþróttaféiagiiiu Akci
Frá aðalfundi Akurs 2002
Aðalfundur félagsins var
haldinn 25.9. 2002 og var
stjórnin endurkjörin þar.
Stjórnina skipa: form. Jósep
Siguijónsson, gjaldk. Gunn-
laugur Bjömsson, ritari Þor-
gerður Margrét Kristjáns-
dóttir, meðstj. Elvar Thor-
arensen.
Æfingar félagsins eru
alltaf með svipuðu sniði á
Bjargi og undir handleiðslu
okkar gamalreyndu þjálfara.
Nokkrir félagar sækja æfing-
ar með Eikinni í fijálsum
íþróttum auk þess sem félag-
ar úr AKRI og EIK æfa inn-
anhússfótbolta undir stjóm
Fylkis, þjálfara Eikarinnar.
Akur átti keppendur á
flestum mótum innanlands í
okkar greinum og stóðu fé-
lagar sig oftast ágætlega.
Af félögunum er það helst
að segja að allir eltust um
eitt ár á árinu en sumir áttu
stærri afmæli en aðrir. For-
maður hefur reynt að flytja
kveðju og smágjafir frá félag-
inu á þessum stærstu tíma-
mótum.
Eftirtaldir gullverðlauna-
hafar félagsins vom heiðrað-
irí desember 2002:
Helga Helgadóttir, Jóhann
Þór Hólmgrímsson, Lilja
Guðmundsdóttir, Oddný Sig-
urrós Stefánsdóttir, Ragnar
Hólm Ragnarsson, Stefán
Thorarensen og Þ. Margrét
Kristjánsdóttir. Einnig varð
línudanshópurinn íslands-
meistari á árinu.
Félagið átti fulltrúa á ÍF-
þingi sem haldið var í ár.
Akur hefur notað opnu
sína í Leó, félagsblaði Hængs,
og er það góður vettvangur til
kynningar á félaginu.
Gullverðlaunahafar Akurs árið 2002 heiðraðair af ITA. Lilja
Guðmundsdóttir, Oddný Sigurrós Stefánsdóttir, Helga Helgadóttir, Ragnar
Hólm Ragnarsson, fóhann Þór Hólmgrímsson og Stefán Thorarensen.
Helga, Þröstur og Stefán við dómarastörf á
bocciamóti starfsmannafélags Samkaupa og
Akurs 2003.
Jólakortasala gekk vel,
nokkrir seldu mikið auk þess
sem borðtennisdeildin fór í
velheppnaða söluherferð.
Nokkrir félagar stóðu fyr-
ir bingó-skemmtunum og
skiluðu þær allnokkrum tekj-
um.
Lionsklúbbamir Hængur
og Ösp hafa styrkt félagið á
starfsárinu, auk styrkja frá
Sjálfsbjörg, Þroskahjálp, Ak-
ureyrarbæ og fleirum.
Frá aðalfundi Akurs 2003, sem haldinn var íÁnni, félagsheimili Lionsklúbbsins Hœngs.