Reykvíkingur - 09.11.1928, Side 7

Reykvíkingur - 09.11.1928, Side 7
REYK VIKINGUR 703 ljós, við nánari rannsókn, að þarna var hellurista, og var það af drekaskipi. En þarna nálægt fanst fórnarhella. Er talið að þetta sé frá eiröld Noröurlanda. Búist er við að íleira finnist þarna af líku tagi, þegar búið er að nema burt moldarlagið, er hylur mestan hluta þessarar klappar. Umsetið hús. Kona ein í Lundúnum, er frú Rulidge heitir, og er mjög rík, •var um daginn dæmd til þess að borga reikning, að upphæð liðlega tvö þúsund krónur. En henni þótti það óréttlátt, og borgaði ekki að heldur. Þegar komið var til þess að taka eign- arnám hjá henni, þá voru allar hurðir ríglokaðar, svo ómögulegt var að komast inn í húsið til hennar. Hefur frúin látið lög- regluna vita, að hún hafi vistir til tíu mánaða, og að hún ætli engu'm að hleypa inn í lnisið þá mánuði. Dómsúrskurður hefur verið kveðinn upp um, að taka eigi frá henni ljós-, vatns- og gasleiðslu, og þannig neyða hana til þess að opna húsið, en um það sitja tveir lögreglumenn nótt °g dag. •------------ Nýkomin ORGEL, PIANÖ. Beztu borgunarskilmálar. Brúkuð hljóðfæri keypt og tekin í skiftum. Hljóöfærahúsið. Jón (nokkuð drjúgur): Ég sef altaf með seðlaveskið initt undir höfðalaginu. Bjarni (drýgri): Já, ég gerði það nú líka einusinni, en ég þoli ekki að hafa svo hátt undir höfðinu, svo ég er hættur því.

x

Reykvíkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/854

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.