Reykvíkingur - 09.11.1928, Blaðsíða 23
REYKVIKINGUR
719
Einn á eyðiskeri.
Uin daginn lagði fertugur sjó-
inaður, að nafni Sigurd Engström,
af stað frá Saltsjöbaden við
Stokkhólm; hann var á litlum
vélbát og ætlaði að skjóta sjó-
fugl.
En pegar hann var kominn
út fyrir yztu eyjar skerjagarðs-
ins, bilaði vélin, og rak bátinn
fyrir straumi og vindi. Loks bar
hann að landi við eyðisker eitt,
við Álandseyjar, og braut þar,
en maðurinn komst í land. Dvaldi
hann par í átta daga, en pá
'anst hann þar. Var hann f)á
meðvitundarlaus og kalinn á öðiv
um fæti, og illa á sig kominn
að mörgu leyti, enda hafði hann
varið matarlaus allan tímann.
Hann var fluttur til Stokkhólms.
-------------
-— Fyrir tveim árum lögðu
"nun Danir af stað í leiðangur
til nyrsta hluta Ameríku, til
Þess að rannsaka skilyrðin fyrir
hreindýrarækt norður par. Pað
var Kanadastjórn, sem kostaði
'eiðangurinn. Á ferðalagi pessu
fórust þrír Danirnir, en foring-
inn Erling Porsild og bróðir hans
komust aftur til bygða.
—- Minni háttar járnbrautar-
Þ*ys varð nálægt París. Slösuð-
ust 13 manns.
Frá Vestfjörðum
til Vestribygðar
eftir Ólaf Friðriksson
Með mörgum myndum, kostar
aðeins 4 kr. 50. Fæst hjá bók-
sölum og á afgreiðslu »Reyk-
víkings«, Tjarnargötu við Her-
kastalann.
— Óeirðir hafa orðið í Tel-
Aviv í Palistínu, milli Gyðinga,
sem vilja halda við hebrezkuna,
og þeirra, sem vilja að töluð
verði alment jiddisch í Landinu
Helga. En þetta síðarnefnda mál
er einskonar þýska, er Gyðingar
tala víða hér í álfu.
— í 'Svíþjóð ók bifreið út í fljót.
Bifreiðarstjórinn sýndimikið snar-
ræði eftir að bifreiðin var komin
í lljótið, og reyndi að bjarga
farþega, sem var í henni, en það
var 03 ára gamall maður og
mjög stirður, og tókst ekki. Að
lokum slapp bifreiðarstjóri sjálf-
ur með naumindum, og skar sig
áður illa á annari hendi og hand-
legg á glerjum. Bifreiðarstjóri
þessi heitir H. Náslund.
— Sextugur inaður í Mattmar
í Svíþjóð var að ditta eitthvað
að liúsvegg, en kom þá við raf-
leiðslu og beið þegar bana af.