Reykvíkingur - 09.11.1928, Blaðsíða 8
704
REYKVIKINGUR
GólfmoUur
og Gangadreglar
Nýkomid stórt úrval. Verðið lækkað.
Veiðarfæraversl. GEYSIR.
Eiðar.
í lögregluréttinum i London
koma oft fyrir einkennilegir at-
burðir. — Kínverji, sem átti að
sverja þar, gekk að ljósinu og
slökti {)að; sagðist hann ekki
vinna eið nema í myrkri. Annar
kínverskur siður er að peir, sem
vinna eið að einhverju, verða
að brjóta leírker eða skál. I’essi
síðarnefndi siður olli einusinni
dálitlum vandræðum. Kínvei’ji
einn átti að vinna eið, en þá
farist ekkert leirker rié skál
handa honum að brjóta.
Eitt réttarvitnið fór til konu
dyravarðar réttarhússins og bað
hana að lána sér leirker. Konan,
sem hefur eflaust verið rnesta
gæðakona, lánaði honum dýra
skál, sem hún hélt mikið upp á.
Nú vann Kínverjinn eiðinn, og
kerið var brotið. — En aumingja
konan, sem hafði lánað skálina,
varð alt annað en glöð, þegar
hún heyrði um afdrif þess.
Pegar Gyðingar vinna eið,
þurfa þeir helzt að hafa eitt-
livað á höfðinu, en ef þeir hafa
ekki húfu, þá leggja þeir hönd-
ina á höfuðið, eins og þeir séu
með höfuðverk.
— Pegar Múhameðstrúarmenn
vinna eið, leggja þeir hægri hönd-
ina flata á kóraninn (hina helgu
bók þeirra), en hina leggja þeir
á ennið; síðan beygja þeir höf-
uðið, svo að báðar hendur og
ennið hvíla á kóraninum.
Má segja með eiðinn sem ann-
að: Sinn er siður í landi hverju.
----•>—---------