Vera - 01.04.1991, Qupperneq 3

Vera - 01.04.1991, Qupperneq 3
V E R A A P R I L ÁFRAM EÐA AFTURÁBAK? Fyrir 40-50 árum var hjóna- bandið vænlegasti kostur ungra kvenna og undir það voru þær búnar frá þvi í vöggu. Að sjálf- sögðu gengu stúlkubörn í skóla og áttu kost á framhaldsmennt- un, en þjóðfélagið var byggt á hefðinni, kona og börn á heimil- inu, karlmaðurinn á vinnumark- aðnum. Undir þeim kringum- stæðum þótti menntun kvenna harla þýðingarlítil, þar sem hún nýttist eingöngu til barnauppeldis og heimilisstarfa. Þá var kvenfólkinu nær að sækja þekkingu sína í húsmæðraskóla, þar lærðu þær eitthvað að gagni. Karlmenn voru aldir upp til að verða höfuð og fyrirvinnur fjölskyldna sinna, þær til að hugsa um heimili og börn. Þeir hurfu frá mæðrum sínum til eiginkvenna og voru eftir það alfarið á þeirra ábyrgð. Sannur húsbóndi á sínu heimili var sá sem rétti út hendina eftir hreinni skyrtu og hreinum sokkum, sönn kona sú sem rétti honum allt upp í hendurnar og sá fyrir öllum hans þörfum. Honum komu þarfir sjálfs sín ekki nokkurn skapaðan hlut við, líkt og Guð almáttugur stóð nokkrum hæðum ofar þessu heimilisvafstri. Innan íjögurra veggja streðuðu konurnar frá morgni til kvölds. Þær þrifu, elduðu, bökuðu, saumuðu, spöruðu, ólu börn og unglinga og önnuðust gamalmenni. Samt var alveg makalaust hvað þessi vinna var til fárra fiska metin, öfugt við vinnu karlmanna var þetta kallað dútl sem ekkert gaf af sér. Og í skattaskýrslum voru þær taldar á framfæri eiginmanna sinna. Þeirra vinna var ekki talin skila arði. Jafnvel þær giftu konur sem fóru út á vinnumarkaðinn til að drýgja heimilispeningana, gættu þess vandlega að láta enga rýrð falla á höfuð íjölskyldunnar og fyrirvinnu, með því að segjast ekki gera þetta peninganna vegna, það væri vel fyrir þeim séð. I dag ganga stúlkur i hjónaband sem jafningjar manna sinna, oft með sambærilega ef ekki betri menntun. Þrátt fyrir það daga þær oftast uppi með heimilisstörf og barnauppeldi eins og mæður þeirra og ömmur og fullan vinnudag utan heimilis að auki. Þeir gnpa í að hjálpa þeim, eins og sagt er, með einstaka starf. Auðvitað er þetta ekki algilt, það eru til heiðarlegar undan- tekningar. En hvaða karlmaður sleppir félagsstörfum og áhuga- niálum til að sinna heimilisverkum? Þeir eru ekki margir. Eg hélt fyrir allmörgum árum að þetta væri allt að breytast, sem hefur að vísu gerst, en alltof hægt. Hvað hefur brugðist? Erum við enn að ala upp yflrmenn og undirsáta? Hvað með launamismun kynjanna? Nýlegar tölur hafa sýnt að hann er ótrúlega mikill. Nei, stúlkur mínar, það er ýmislegt eftir. Geirþrúður Kristjánsdóttir Ilvað er svona slæmt við freonið í ísskápnum mínum? Af hverju má ég ekki setja eins mikið þvottaefni í vélina og ég er vön? Hvernig er hægt að ætlast til að ég noti ekki bílinn minn þegar almenningssamgöngur eru svo lélegar í þessari borg að það tekur bróðurpart úr degi að komast milli borgarhluta með strætó? Er Frigg umhverflsvænni en Sjöfn eða á ég að kaupa útlenskt ef það er umhverflsvænna en það íslenska? Er allur grár pappír endurunninn og þar með óhætt að kaupa hann? Eru til umhverfisvæn dömubindi? Er betra að sleppa frauðplastbakkanum og láta pakka síldinni inn í þijá metra af plastfllmu? Er óhætt að kaupa allt sem er staðsett í heilsuhorninu? í þessari VERU eru ýmsar vistvænar vangaveltur. Sífellt fleiri gera sér grein fyrir því að við verðum að taka upp nýjan lífsstíl sem byggir á þeirri hugsun að hver og einn geti lagt sitt af mörkum til verndar umhverfinu með innkaupum sínum, neyslu og athöfnum. Ljóst er að enn eitt átakið dugir ekki, hér þarf framtíðarsýn. En hverju erum við reiðubúnar að fórna á altari umhverfisverndunar? RV MEÐ HEIMINN í HÖNDUM OKKAR ' 5 Greinaflokkur um umhverfismál. MELKORKA 18 Fjallaö um Kvennafímarifið Melkorku sem kom úf 1944-62. LÝÐRÆÐISLEG ÞRÓUN 20 Á KOSTNAÐ KVENNA Hvernig hefur konum og þeirra baráttumálum reitt af í nýfrjálsum ríkjum Ausfur-Evrópu? OPINBER YFIRRÁÐ YFIR LÍKAMA KVENNA 23 ALÞINGISKOSNINGAR 1991 26 ÞETTA ER MITT LÍT 28 Guörún Lára Ásgeirsdóttir ÞAÐ KOSTAR PENING 34 AÐ FÁ AÐ SKOÐA ÖRIN Leikdómur um leikrifiö „Bréf frá Sylvíu". LÆKNISMÁTTUR LISTARINNAR 35 Viðtal viö Kristínu Andrésdóttur BÓKADÓMUR 39 3

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.