Vera - 01.04.1991, Side 6

Vera - 01.04.1991, Side 6
MEÐ HEIMINN I HÖNDUM OKKAR eru gróðurhúsaáhrifln sem fræðingarnir eru alltaf að tala um þá er ég nú bara ánægð með þau.“ Hinar tóku í sama streng. Nú er loksins farið að tala um umhverfls- vernd og líklega reynum við að afgreiða hana með enn einu skammtíma átaki. Ýmis orð og hugtök koma fyrir í sífellu sem ég, venjuleg kona í vesturbænum, skil ekkert í. Hvað er svona slæmt við freonið í ísskápnum mínum? Af hverju má ég ekki setja eins mikið þvottaefni í vélina og ég er vön? Hvernig er hægt að ætlast til að ég noti ekki bílinn minn þegar almenningssamgöngur eru svo lélegar í þessari borg að það tekur bróðurpart úr degi að komast milli borgarhluta með strætó? Innkaupaferðir mínar verða sífellt lengri og flóknari. Fyrir tíu árum fór ég í Hagkaup, kíkti á verðmiðann og gerði hagstæð innkaup. Þá kom áróðurinn um að kaupa íslenskt og eftir það leit ég bara á „íslenska“ verðmiða. Ég varð meðvituð um valdið í innkaupakörfunni eftir að hafa lesið september VERU og fór að hygla og refsa verslunum, allt eftir viðhorfi og framkomu starfsfólksins við mig og vinkonur mínar. Síðastliðið haust sagði ég skilið við Hagkaup vegna nýbökuðu mæðranna sem misstu vinnuna (sjá nóvember VERU) og varð að læra á rekkana í öðrum stórmarkaði. Þegar það hafði loksins tekist varð krafan um að vera umhverflsvænn sífellt háværari og nú má sjá mig lötra á milli hillna, lesandi á alla miða og þó ég sé læs skil ég fæst af því sem þar stendur (ef það þá stendur eitthvað). Hvað eru öll þessi E, er það eitur??? Er Frigg umhverfisvænni en Sjöfn eða á ég að kaupa útlenskt ef það er umhverfisvænna en það íslenska? Hvi er uppáhaldsgosið mitt í einnota plastdósum? Er allur grár pappír endurunninn og þar með óhætt að kaupa hann? Eru til umhverfisvæn dömubindi? Er betra að sleppa frauðplastbakkanum og láta pakka síldinni inn í þrjá metra af plastfilmu? Er óhætt að kaupa allt sem er staðsett í heilsuhorninu? Voru Neytendasamtökin ekki að vara við óheiðarlegum merkingum á ýmsum vörum? Verð ég að lifa á vatni og eggjum í bláum endurnýttum eggjabökkum á meðan línur skýrast? Og hvernig veit ég hvort i þeim eru egg úr „frjálsum hænum eða heftum“? RV NOKKUR HUGTÖK SEM KOMA OFT FYRIR í UMRÆÐU UM UMHVERFISMÁL: Ózon er lofttegund sem er n.k. afkomandi súrefnis í andrúmslofti jarðar. í stað tveggja atóma súrefnisins hefur ózon þrjú. í 10-50 km hæð yfir jörðu er þunnt lag þessara lofttegundar sem stöðugt er að myndast og sundrast, s.k. dýnamískt jafnvægi. Ózonlagið mynd- ast fyrir tilverknað útfjólu- blárra geisla sólarinnar og hindrar síðan að þessir orkuríku og skaðlegu geislar sólar nái yflrborði jarðar. Enginn veit með vissu hver áhrif þess verða ef ózonlagið þynnist eða hverfur en vitað er að útfjólubláir geislar sólar valda stökkbreytingum hjá öllum lífverum og eru þ.a.l. krabbameinsvaldandi hjá mönnum. Þynning ózon- lagsins hefur lamandi áhrif á allt vistkerfið. Gróðurhúsaóhrif stafa af þeim eiginleika koltvisýrings að hleypa í gegnum sig stutt- bylgjugeislun sólar en ekki langbylgjugeislun jarðar þannig að við aukið magn koltvisýrings í andrúmslofti safnast varminn saman en hverfur ekki út í geiminn. Brennsla kola, olíu og bensíns eru talin vera farin að hækka meðalhitastig á jörðinni. Landbúnaðarsvæði spillast, jöklar bráðna, yflr- borð sjávar mun hækka og strandsvæði fara í kaf. Akst- ur bíla á stóra hlutdeild í koltvísýringnum sem hleypt er út í andrúmsloftið og veld- ur ásamt öðrum lofttegund- um gróðurhúsaáhrifum. Fosfat er mikið notað í tilbúinn áburð og í þvottaefni o.fl. Klór er notað í efna- iðnaði til bleikingar og sótt- hreinsunar. Fosfat og klór eru ætandi og því stór- hættuleg ef þau fara í augu eða í munn. Margt leynist! eldhússkápunum. Ljósmynd: Anna Fjóla Gísladóttir Fosfat getur valdið skaða á lífríki sjávar og vatna (svokölluðum vatnadauða). Fosfötin verða næring fyrir þörunga í vatninu og þeir geta farið að vaxa of mikið og kæft allt líf. Pappírsnotkun gengur á skóga og framleiðsla pappírs er mengandi. Lengi var allur pappír gerður skjannahvitur með klórgasi. Við bleikingu myndast mjög hættuleg efna- sambönd sem menga bæði loft og vatn. Nú er hægt að fá pappír sem er framleiddur með öðrum og umhverfis- vænni aðferðum. Best er að kaupa óbleiktan og klórfrían pappír og nota endurunnin pappír þegar hægt er. Freon eru lyktarlaus, óeldfim efni sem eru notuð sem kæli- efni og þiýstiefni í úðabrús- um. Það er mikið notað í efnalaugum við hreinsun, er í ísskápum o.fl. Það er talið valda eyðingu ózonlagsins. Samþykkt hefur verið að minnka notkun þess í heim- inum. 6

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.