Vera - 01.04.1991, Qupperneq 11

Vera - 01.04.1991, Qupperneq 11
MEÐ HEIMINN í HÖNDUM OKKAR 1901 og bjó í ýmis konar húsum í Reykjavík (timburhúsi, steinhúsi, blokk og síðast í nýtisku húsi í Hlíðunum) var sífellt að lofa og prisa stórstígar framfarir í bygg- ingariðnaði enda gift húsasmíða- meistara! Hún kvartaði reyndar yfir of mikilli sól í stofunum og þurru lofti en fannst það vega fyllilega upp rakann, kuldann og trekkinn, að ekki sé minnst á vatnsleysið, í gömlu húsunum. Menn í útlöndum hafa vaknað upp við vondan draum og margt bendir til þess að við séum einnig að rumska. Ljóst er að fram- farirnar hafa verið of hraðar og jafnvel meira af kappi en forsjá. Nú, þegar við höfum losað okkur við „heilsuspillandi“ umhverfi for- tíðarinnar kemur í ljós að nútíma umhverfi er einnig heilsuspillandi en bara á annan hátt. Húsin eru orðin þéttari til að forðast trekk og til að spara upphitunarkostn- að og ryk og gufur sem eru til staðar hlaðast þvi upp þar sem loftskipti eru ekki eins tíð. í venjulegu einbýlishúsi hafa mælst 250 mismunandi efni í loftinu. Grunnvatnsyfirborð er á ýmsum stöðum orðið ískyggilega lágt vegna óhóflegrar vatnseyðslu og frárennsli og sorpmál eru viða í ólestri. Vatnssalerni eru t.d. ekki mjög góð uppfinning hvað varðar vatnsnotkun og hreinlæti og útlitshönnun þeirra auk þess fáránleg útfrá þrifnaðarsjónar- miðum. í Noregi er talið að um 30% nýrra skrifstofubygginga og opinberra stofnana séu sýktar og að hlutfall íbúðarhúsnœöis sé svipað. Nú, þegar við höfum losað okkur við „heilsuspillandi" umhverfi fortíðar- innar kemur í Ijós að nútíma umhverfi er einnig heilsu- spillandi en bara á annan hátt. Stöðugt koma á markaðinn ný byggingarefni og tækni, t.d. varð- andi loftræstingu og lýsingu sem eiga að leysa einhver vandamál eða auka notagildi. í raun veit enginn hvaða aukaverkanir kunna að fylgja, því ný efni og ný tæki eru ekki prófuð fyllilega áður en þau eru sett á markað. Mál- fríður Kristiansen, arkitekt, segir að þessu megi e.t.v. líkja við ummæli sem hún heyrði eitt sinn um lækna að þeir viti mikið um sjúkdóma en lítið um lyf og það notfæri framleiðendur sér. Arki- tektar standa frammi fyrir vanda- málum eins og trekk, leka og sliti og grípa gjarnan fegins hendi efni og aðferðir til að ráða bót á þessu. Líkt og með ýmis lyf eru auka- verkanir nú að koma í ljós. Dag- lega koma ný efni á markaðinn, töfraefni sem laga eitt en anda svo kannski frá sér eiturgufum. Þekkt er dæmið um asbestplötur, spónaplötur, ýmis lím og lökk, einangrunarefni o.s.frv. Vandinn er að það er svo eríitt að sanna að efni valdi heilsuskaða, það hvílir á neytandanum og getur tekið áratugi. Málfríður segir þessu til staðfestingar að það séu um hundrað ár síðan læknir í Banda- ríkjunum skrifaði lærða grein um hættur sem stafa af formaldehýð- efninu sem er mikið notað í dag, m.a. í spónaplötur. Það er fyrst nú sem Alþjóða heilbrigðismála- stofnunin hefur sett reglur um notkun þess! Hús er sagt vera með húsasótt þegar byggingarefni eða bygging- araðferðir hafa neikvæð áhrif á líðan fólks. Algengustu einkennin eru óþægindi í slímhúð, höfuð- verkur, svimi og jafnvel ógleði og útbrot. Menn kenna oft um of þurru lofti eða lélegri loftræstingu en það er ekki alltaf ástæðan. Ekki má gleyma alvarlegri og e.t.v. algengustu efnamengun innanhúss sem eru reykingar. Mikilvægt er að vandað sé til bygginga og efni valin af þekk- ingu. Allt sem notað er skiptir máli, byggingaraðferðir og efni, innréttingar, húsgögn, áklæði og gluggatjöld. Sumir telja ráðlegast að láta byggingar standa auðar í nokkra mánuði eftir að verki lýkur og áður en fólk flytur inn. Þannig fá hlutirnir tíma til að „afgasast", anda og jafna sig. Margir arkitektar leggja núorðið áherslu á að húsið sé hluti af hringrás náttúrunnar og allt sem notað sé í það eigi að hverfa aftur til hennar með því að geta brotnað niður. Menn þurfa að vera á varðbergi, læra og krefjast þess að söluaðilar veiti upplýsingar og þá ekki eins og parket-lagningar- maðurinn þegar konan spurði hann hvort límið sem hann notaði væri skaðlegt: Ja við höfum nú notað það í fimm ár og erum ekki dauðir enn! RV SAMEIGINLEG FRAMTÍÐ OKKAR bæði að þörfum dagsins í dag og framtíðarinnar. ... Kjarni málsins er að sjálfbær þróun verður að byggjast á póli- tískum vilja.“ Landvernd þýddi útdrátt úr skýrslunni í fyrra til að hvetja til umræðna um sjálf- bæra þróun - og nú hefur Umhverflsráðuneytið gert slíkt hið sama. Sameiginleg framtíð okkar ... Landvernd 1990. Alþjóðanefnd Sameinuðu þjóðanna lét vinna svo kall- aða Brundtland skýrslu um umhverfis- og þróunarmál árið 1987 og hvatti öll aðild- arríki sín til að taka mið af niðurstöðum hennar við allar ákvarðanir og stefnumörkun í umhverfismálum. Nefndarmenn beindu einkum athygli sinni að einu meginatriði: „Mikið af þró- unarmynstri nútímans gerir vaxandi fjölda fólks fátækara og viðkvæmara, um leið og það er að eyðileggja umhverfi sitt og lífsgrundvöll. Hvað getur slík þróun haft í för með sér á næstu öld þar sem helmingi fleiri menn verða háðir sama umhveríl?" í skýrslunni er lögð áhersla á sjálfbæra þróun. Menn geti tryggt daglegar þarfir án þess að ganga á möguleika komandi kynslóða til að fullnægja þörfum sín- um. „Hugtakið sjálfbær þró- un felur í sér takmarkanir sem miðast við nútíma tækni, félagslegt kerfl og hæfileika lífhvolfsins til að vinna úr þeim áhrifum, sem verða af athöfnum mann- anna. ...Sjálíbær þróun er samt sem áður ekki ákveðið jafnvægisástand. Það er frek- ar breytingaraðgerð, sem þýðir að nýting auðlindanna, stjórnun fjárfestinga, tækni- þróun og breytingar á stjórn- kerfum þurfa að aðlaga sig 11

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.