Vera - 01.04.1991, Page 12

Vera - 01.04.1991, Page 12
MEÐ HEIMINN í HÖNDUM OKKAR KVENVINSAMLEGT UMHVERFI Hvaö dettur þér í hug ef ég segi kvenvinsamlegt umhverfi? Er þaö vaskur og eldhúsborö í réttri hœö þannig aö þú getir leyst hefðbundiö kvennastarf af hendi dn þess að fd í bakiö? Eða er þaö samneysluhús, eins og Melkorku-konur* dreymdi um þar sem þú fœrö tilbúnar mdltíðir og einhver annar þvœr af þér og þrifur undan þér skít- inn? Málfriöur Kristiansen arkitekt leggur áherslu á aö kvenvin- samlegt umhverfi sé annaö og meira. Málfríöur hefur kannaö hvaöa áhrif staöa kvenna í aldanna rás hefur haft á skipulag og hvaöa áhrif skipulag hefur á stöðu kvenna. Hún leggur áherslu á aö bœjar- samfélög hafa breyst mikiö á flestum sviðum nema hvaö varö- ar skiptingu í einkasvœöi og opinber svœði, þar sem konur eru fulltrúar einkasvœöa en karlar hins opinbera. Málfríöur var fús aö deila hugmyndum sínum meö lesendum VERU og viö gefum henni oröiö: 12 H V A Ð E R N Ú Þ A Ð ? Fyrsti vísir að borgarsamfélagi nútímans er líklega þegar hópur fólks fór að búa skipulega saman vegna einhverra sameiginlegra hagsmuna. Sumar borgir urðu miðstöð trúarbragða, aðrar voru varnarvirki og enn aðrar byggðust á krossgötum við ár og vötn sem markaðstorg. Eins og Sigurður heitinn Þórarinsson jarðfræðing- ur sagði einu sinni þá hafa ár þá undarlegu eiginleika að renna oft i gegnum borgir! Með tilkomu borgarastéttar urðu bæir miðstöð stjórnmála, menningar, lista og hagkerfis. Við iðnbyltingu urðu miklar breyt- ingar. Fjöldaframleiðsla kom til sögunnar, fólk flykktist úr sveit í verksmiðjubæi, ný byggingarefni og tækni litu dagsins ljós. Nú var hægt að byggja hátt og þétt og hefðbundin handverksmenning lagðist smámsaman af. Neysla jókst og gerði sífellt auknar kröfur um pláss, samanber risastór aug- lýsingaskilti nútímans. Ný hern- aðartækni gerði það að verkum að bæir voru ekki lengur skipulagðir með varnir eða sókn í huga. Samgönguúrbætur og fjarskipta- tækni hafa líka mikil áhrif á skipulag. Borgarsamfélög hafa þvi þjónað mismunandi hagsmunum og orðið að aðlaga sig ýmsum breytingum. Þrátt fyrir allar þessar breytingar er eitt óbreytt: Skiptingin í einkasvæði og opinber svæði. Staða kvenna er enn inni á heimilunum en karla úti í þjóðfélaginu. Þegar konur „hætta sér“ út af einkasvæðinu inn á það opinbera mæta þeim ýmsar hindranir. Þær alvarleg- ustu eru tvimælalaust olbeldi gegn konum. Það loðir enn við að

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.