Vera - 01.04.1991, Qupperneq 13

Vera - 01.04.1991, Qupperneq 13
MEÐ HEIMINN í HÖNDUM OKKAR konur séu á „eigin ábyrgð“ á opin- beru svæðunum samanber þegar konu sem hafði farið ein á bar í smábæ í Bandaríkjunum var nauðgað, þá fóru eiginkonur nauðgaranna í mótmælagöngu og sögðu að hún gæti sjálfri sér um kennt því hún átti ekkert með að vera að þvælast þarna! Víða er rótgróin skipting í karla- svæði og kvennasvæði. Bedúínar hafa t.d. sérstök kvennatjöld og mörg íslensk heimili státa af húsbóndaherbergi nálægt útidyr- um með sérsnyrtingu. Þetta skipulag á sér bæði félagslegar og efnahagslegar skýringar. Feðra- veldið hefur hagsmuni af því að aðskilja kynin á þennan hátt. Konan, vinna hennar og börn - að minnsta kosti þar sem þau eru mikilvægt vinnuaíl— er eign mannsins og hann verndar þessa eign sína með alls konar lögum, venjum og skipulagi. Þó svo að konur haíi alltaf unnið ýmis störf þá hafa þær alltaf og alls staðar verið ábyrgar fýrir þvi staríi sem telst að viðhalda fjölskyldunni, þ.e. umönnun barna, matartil- búningur, þvottur og fleiri svo kölluð heimilisstörf, án tillits til aldurs eða þátttöku í barneign- um. Fýrir iðnbyltingu má segja að þessi störf hafi verið hluti af efnahagslegri einingu íjölskyld- unnar. Heimilið var efnahagsleg heild þar sem framleiðsla og endursköpun áttu sér stað, en með iðnbyltingunni varð breyting þegar flest framleiðslustörf fiuttu út af heimilinu og urðu launa- vinna. Eftir sátu konurnar með hefðbundin kvennastörf sem enn voru ólaunuð og urðu smám sam- an ósýnileg. Fjölskyldulaun komu til sögunnar, ein laun skyldu nægja tii framfærslu fjölskyld- unnar og eiginmaðurinn hafði þvi öll efnahagsleg völd á heimilinu. Og nú kom ástin til sögunnar, hún varð laun erflðis og heimilið varð ímynd hamingjunnar. Heim- ilið átti að vera griðastaður eigin- mannsins þar sem hann hvíldist eftir erfiðan vinnudag í faðmi fjöl- skyldunnar. Þó svo að raunveru- leikinn hafi verið allt annar var þetta ímyndin og hún hefur reynst lífsseig. Konum hefur verið ýtt út á vinnumarkaðinn þegar þörf hefur verið fyrir þær og inn á heimilin aftur þegar kreppt hefur að. í seinni heimsstyrjöldinni var t.d. mikil þörf fyrir útivinnu kvenna í Málfríöur Klara Kristiansen arkitekt. Ljósmynd: Ragnhildur Vigfúsdóttir Bandaríkjunum og þá urðu heim- ilisstörf skyndilega þýðingarlítil. Þess í stað spruttu upp dagheim- ili, matsölur og önnur félagsleg þjónusta til að auðvelda konum vinnu utan heimilis. Að stríði loknu var öllu lokað, konum sagt upp og áróðurinn fyrir úthverfum og barneignum hófst. Heimilis- hald varð æ flóknara þrátt fyrir tæknivæðinguna og barnauppeldi varð sífellt vísindalegra. í stað þess að iðnvæða heimilisstörfin voru heimilin tæknivædd sem einkaneysla. Þessu hefur Betty Friedan lýst á óviðjafnanlegan hátt í bók sinni Goðsögnin um konuna. Auglýsing úr Melkorku, maí 1946, Síðastliðna áratugi hafa konur farið að mennta sig í ríkara mæli. Þær hafa alltaf verið úti á vinnu- markaðnum, þó svo að horft væri fram hjá því eins lengi og kostur var og lítið tillit tekið til þess. Nú er svo komið að varla er haldin ráðstefna um skipulagsmál án þess að rætt sé um skipulag út frá sjónarhóli kvenna. Því auðvitað er þetta talið einkamál kvenna! Allt skipulag miðast við draumafjöl- skylduna, pabbi skaffar, mamma heima, börn (og bíll). Staðreyndin er hins vegar sú að þessi drauma- fjölskylda er varla til nema í auglýsingabæklingum frá bók- sölum og ferðaskrifstofum. Hjónaskilnaðir eru tíðir, sífellt fleiri verða einstæðar mæður, fá- tækum konum fjölgar, og nýtt fjöl- skylduform, „teygjuíjölskyldan“ þar sem börn úr fýrri sambönd- um koma og fara, er að ryðja sér til rúms. Skipulagsfræðingar eru að gera sér grein fýrir þvi að þeir verða m.a. að taka tillit til breyttra fjölskylduaðstæðna en enn sem komið er mæna þeir um of á lausnir sem eiga að gera konum auðveldara að sinna hefðbundnu kynhlutverki sínu, jafnframt þvi að sinna störfum ptan heimilis. Lausnir sem einkum eru nefndar er aukið þéttbýli sem býður upp á samhjálp kvenna, stórfjölskyldu- fyrirkomulag og íbúðir sem henta teygjufjölskyldum. Bættar al- menningssamgöngur, að aðlaga vinnumarkaðinn þörfum kvenna t.d. með sveigjanlegri vinnutima og að minnka muninn milli opin- berra svæða og einkasvæða. Það verður að gera einkamálin póli- tísk og hafa í huga að það sem oft er skilgreint sem barnvinsamlegt umhverfi þarf ekki endilega að vera kvenvinsamlegt. Það bæjar- og borgarskipulag sem við búum við hamlar breyt- ingum í jafnréttisátt. Á meðan karlveldið hefur hag af veru kvenna á vinnumarkaði munu ýmsar skipulagsbreytingar í þessa veru sjá dagsins ljós. En meðan ekki er vegið að rótum vandans, sem er staða konunnar í nútima þjóðfélagi, eru allar breytingar aðeins plástrar á sárið. RV ‘Fjallað er um kvennablaðlð Melkorku í VERU að þessu sinni. 13

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.