Vera - 01.04.1991, Side 15

Vera - 01.04.1991, Side 15
MEÐ HEIMINN í HÖNDUM OKKAR RUSL OG EKKI RUSL ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■I .U. Á horni Langholtsvegar og Dyngjuvegar er stórt og mikið hús, í því er meðal annars dagheimilið Ásborg. Það er á einhvern hátt tignarlegur blær yflr húsnæðinu sem upphaf- lega var byggt og rekið af Thor- valdsensfélaginu. Innandyra er ýmislegt sem vekur athygli gestkomanda. Á borði í gang- inum eru tveir kassar, annar merktur „hlutir sem tilheyra náttúrunni“ og hinn merktur „tilbúnir hlutir fundnir í nátt- úrunni" öðru nafni drasl. Börnin hafa tínt dót úti og flokkað það á þennan hátt. Aðaláhersla starfsins í Ás- borg er á sköpun og skapandi starf með tengingu við náttúr- una og náttúruvernd. Börnin fara út og tína rusl og vinna á mismunandi vegu úr þvi. Þau flokka það í náttúmlegt og ónáttúrulegt, þau vikta ónátt- úrulega ruslið og bera saman magn af msli frá mismunandi svæðum. Kristín Dýríjörð forstöðu- kona heimilisins sagði að þær reyndu að nýta allskonar hluti sem annars væri hent. Hún sagði þetta reyndar ekki vera nýja stefnu hjá fóstmm því að þannig hefðu fóstmr alltaf unnið, það er að segja notað svo kallað verðlaust efni í skapandi starfi með börn- unum. Umíjöllun um náttúruna er ákaflega stórt viðfcmgsefni, þannig að í vetur hafa þau að- allega einbeitt sér að vatninu. Þau hafa hlustað á ýmis tón- verk tengd vatni og sjó, sungið lög sem tengjast þvi og gert tilraunir af ýmsu tagi. Eitt af þvi setn Kristin gerir með börnunum er að endur- vinna pappír. KK 1. Dagblað er lagt í bala með vatni, Olga 5 ðra og Laufey 3ja óra njóta þess að rífa gegnblautt blaðið í litla bita. 2. Blaðatœgjurnar veiddar uppúr, settar í skdl og þeytt- ar með töfrasprota. 3. Jukkinu hellt útí vatnsbala. 4. Olga sigtar pappírsörður uppúr vatnsbaðinu og þerrar sigtið að neðan með svampi. 5. Olga rúllar pappírinn til að nó meiri vökva úr honum. Nú er hún með tilbúinn endurunninn pappír, hann á aðeins eftir að þorna áður en hœgt er að nota hann. Þannig þjuggu börnin í Ásborg til jólakort til foreldra sinna um síðustu jól. 15

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.