Vera - 01.04.1991, Side 18

Vera - 01.04.1991, Side 18
-■ . MELKORKA TÍMARIT KVENNA Tímaritið Melkorka kom út á árunum 1944-62. Árið 1948 kom ekkert blað út en frá 1949 gaf Mál og menning tímaritið út. Á tíu ára afmælinu er sagt hver tilurð blaðsins var: „Upphaf að stofnun Melkorku 1944 var að endurreisa átti lýðveldi íslands. Nú skyldu konur skipa veglegri sess við hlið karla en áður hafði þekkst.“ Blaðið hvatti konur til að láta þjóðmál meira til sín taka og vakti athygli á ábyrgð- inni sem fylgdi auknum réttindum þeirra. Málgagnið átti einnig að flytja greinar af „baráttu kynsystra okkar annars staðar í heiminum, i einu orði menningarrit sem væri konum íslenzka lýðveld- isins samboðið.“ Helga Kress, bókmenntafræðingur, telur Melkorku vera „tvímælalaust eitt skeleggasta timarit sinnar tegundar sem gefið hefur verið út á íslandi, auk þess sem hún er merk heimild um kvennabaráttu síns tíma." Nafn sitt hefur blaðið frá Melkorku Mýrkjartansdóttur sem tekin var herskildi á írlandi og flutt nauðug til íslands, þar sem hún mælti ekki orð af vörum árum saman svo eigandi hennar og barnsfaðir, Höskuldur, heyrði. Rannveig Kristjáns- dóttir segir svo í fýrstu rit- stjórnargrein sinni Sól er á loft komin...: Jslenzku konur! Þögn okkar hefur uerið þrálát og löng eins og þögn Melkorku, og sjaldan rojin nema þegar móðir leggur barni sínu heil- ræði.... En hin vaxandi samtök alþýðunnar í landinu veita konunni fyrirheit um fegurri dag og krefjast þess um leið af henni, að hún skilji ábyrgð sína, sem þjóðfélagsþegn og hlutgengur aðili í baráttu hinna vinnandi stétta. ... Bar- átta konunnar gegn karl- manninum er ekki lengur til, heldur aðeins barátta hennar við hlið hans, fýrir réttlátara þjóðskipulagi. Á þann hátt öðlast hún fyrst frelsi og fullt jafnrétti." í Melkorku eru ýmsar greinar um sovéskar og kín- verskar konur, enda aðstand- endur blaðsins sósíalistar. Einnig er sagt frá friðarbaráttu kvenna heima og heiman. Blaðið birtir fjölda ljóða, sögur og leikrit eftir íslenskar og erlendar konur. Einnig eru rit- dómar og viðtöl við listakonur og konur sem voru að ljúka námi í „nýjum“ fögum. Hann- yrðir og uppskriftir eru í flest- um blöðum. Rannveig Kristjánsdóttir skrifar fróðlegar greinar um Heimilisstörf og hagfræði og um Eldhúsið og skipulag þess. í greininni um heimilisstörf og hagfræði segir Rannveig m.a. að aðeins tvær leiðir séu færar til að létta heimilisstritið: Að flytja tæknina inn á heimilin eða að flytja störfin út af heimilunum. Hún vill að konum verði gert kleift að velja um störf utan heimilis og húsmæðrastarfið viðurkennt sem arðbært og launað. „Á þvi sviði sem öðrum væri tæknin hagnýtt sem bezt." Barns- fæðingar verði taldar nauð- synlegar þjóðfélaginu og því tekið upp launað barnsburð- arleyfi og styrkur til heima- vinnandi mæðra. Einnig vill hún að skipulögð verði „fram- leiðsla matar í stórum stíl“ sem menn ráði hvort þeir neyti heima eða heiman, starfs- stúlknamiðstöð svo að konur „gætu fengið heimili sin ræst og mat þar fram borinn.“ Einnig vill hún véltæk þvotta- hús, leikskóla og byggðahverfi þar sem íbúar hefðu nána samvinnu um jarðyrkju- og heimilisstörf. Árið 1945 skoðar Rannveig samneysluhús í Gautaborg ásamt fýrsta íslenska kven- arkitektinum Halldóru Briem Ek. Halldóra býr þá í slíku húsi ásamt eiginmanni sínum og tveimur smábörnum og Rannveig spyr hana um kost og löst samneysluhúsa. Hall- dóra segir að húsin séu of dýr í rekstri fyrir allan þorra manna þvi þau hafi verið byggð of lítil og veitingasalan þvi ekki borið sig. Barnafjöldi er misjafn og þvi vissir erfiðleikar i rekstri leikskóla og dagheimila en hún telur að ein lausnin felist í þvi að reisa fremur kollektivhverfi i stað- inn fyrir kollektivhús. Hall- dóra lýsir einum degi sínum þannig: „Það er svo sem ekkert skrýtið við að búa í svona húsi. - Við förum sæmilega snemma á fætur, klæðum börnin og sendum þau i leikskólana. Klukkan 8,30 þarf ég að vera komin í vinn- una. - Hádegisverð borða ég einhvers staðar nálægt skrif- stofunni. Kl. 4,30 kem ég heim og þá borðum við á matstof- unni, sem er hér í álmunni. Svo sækjum við börnin, sem eru þvegin og södd og þá byijar kvöldið. Leikstofan er lokuð á laugardögum eftir há- degi og á sunnudögum og þá höfum við börnin hjá okkur.“ Þvotturinn er sóttur og skilað tandurhreinum og straujuð- um, einnig er sérstök fatavið- gerðastöð á staðnum." Ræst- ingakona kemur eftir að hús- móðirin fer á morgnana og tekur til í íbúðinni. Á barna- heimilinu er einangrunarher- bergi fyrir veik börn. „Það er óskaplegur munur að búa í svona húsi, eins og ég bý i,“ segir Halldóra að lokum „frá því að hafa enga hjálp og þurfa að gera allt sjálfur, og þetta hverfi virðist mér vera stór- kostleg tilraun til þess að reyna að sníða bæjarfyrir- komulagið eftir þörfum þeirra húsmæðra, er halda vilja starfi sínu, og eins þeirra, er ekki geta haldið starfsstúlku, en anna ekki heimilisstörfunum sjálfar. Og það er nú einu sinni svona, eins og við höfum svo oft rætt um áður, að við viljum ekki hætta starfi, og ef við eigum að hætta um leið og við giftum okkur og eignumst börn, er það gersamlega tilgangslaust að vera að leggja fjármagn í sérmenntun okkar - en við verðum bara, eins og nú er í pottinn búið, að taka að okkur tvö störf. Og fyrir utan það, sem við höfum verið að ræða um, þ.e.a.s. betri skipu- lagningu íbúða og bæjar- hverfa, sé ég einungis tvennt, sem getur stuðlað að þvi, að leysa þetta vandamál. Annars vegar breytt uppeldi karl- mannanna, þannig að þeim þegar frá blautu barnsbeini væri innrætt, að þeir ættu engu síður en kvenfólkið að hugsa um hirðingu á sínum eigin fötum og bera ábyrgð á útliti heimilisins og uppeldi barnanna. ... Hitt er að greiða öllum konum mæðralaun frá ríkinu. Launin eiga að vera það ríflega tiltekin, að þegar konan hefur eignazt ákveðinn íjölda af börnum, segjum þrjú, geti hún valið, hvort heldur hún notar launin til að greiða fyrir börnin á leikskóla eða greiða laun starfsstúlku, eða hvort hún segir upp starfi sínu 18

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.