Vera - 01.04.1991, Blaðsíða 25

Vera - 01.04.1991, Blaðsíða 25
’&PINBERYI IRFIÁÐ |fIR LÍKAMA KVENNAj í kjölfar misheppnaðra fóstur- eyðinga fæðast mörg andlega og líkamlega vanheil börn í heiminn. Meðferð á sjúkrahúsum er ævin- lega við það miðuð að viðhalda þunguninni jafnvel þegar augljóst er að gróf tilraun til fóstureyð- ingar hefur þegar skaðað fóstrið. Læknar sem geta státað af mikl- um fjölda fæðinga eiga visan frama og rétt á sérstökum fríð- indum. Opinber yíirráð ylir líkama kvenna eru ótrúlega viðtæk. Námskona er handtekin ásamt flmm samstúdentum sínum. Þessi sex eru á bíl á leið til þorps nálægt landamærunum. Foreld- rar eins þeirra búa þar. Það er búin til kæra á hendur þeim um „tilraun til að flytjast ólöglega úr landi“. Ekkert þeirra hafði farið út úr bílnum og bíllinn hafði ekki ekið út af aðal þjóðveginum. Sam- stúdentarnir fimm, allir karlkyns, eru rithöfundar og þekktir hjá Höft og yfirráö ná ekki til dœtra og eiginkvenna háttsettra foringja í flokknum. Þaö em sérstök sjúkrahús fyrir meölimi flokksins þar sem fóstureyðingar eru framkvœmdar. Allar aðrar konur eignast börn, lenda í fangelsi eða deyja. leynilögreglunni fyrir „aðgerðir íjandsamlegar ríkinu". Það er farið með þá í samliggjandi eins- mannsfangaklefa. Námskonan, ekki rithöfundur, er tekin og flutt í aðra álmu og haldið þar í fjölda- 'klefa fyrir vændiskonur. Meðan á yfirheyrslu stendur grípur lög- regluforinginn um brjóst hennar og rass. Hún ver sig. Foringinn verður reiður. „Reyndu ekki að sýna hæversku. Hversu marga kílómetra af besefum hefur þú sogið?“ Hann ógnar henni með þvi að slá hana. Af einskærum ótta hreyfir hún ekki mótmælum. Hann lætur sem hann ætli að kyssa hana og hún lokar aug- unum og ákveður að fá þetta yfirstaðið. Hann lemur hana tvisvar í andlitið og fullyrðir að hún hafi reynt að tæla hann. Hún er flutt grátandi aftur í klefann. Konurnar fagna henni hlægjandi. „Vertu ekki svona pempíuleg. Þetta er bara byijunin. Þú ert hér rétt eins og við - til að þeir geti riðið þér.“ Höft og yflrráð ná ekki til dætra og eiginkvenna háttsettra foringja í flokknum. Það eru sér- stök sjúkrahús fyrir meðlimi flokksins þar sem fóstureyðingar eru framkvæmdar. Allar aðrar konur eignast börn, lenda í fangelsi eða deyja. Sú spurning leitar á, hvers vegna þessi geðveiki? Hvers vegna vill einræðisherrann hraða mann- fjölguninni svona mikið? Hið efnahagslega öngþveiti er vel þekkt. Stríð er varla í sjónmáli. Strax á barnaheimilunum heyra börnin daglega þessa setn- ingu: „Félagi Ceausescu er faðir allra barna." í mörgum tilvikum er þetta - á sinn ógnvekjandi hátt - rétt. isg (Þýðing úr Connexions no. 31 1989) Hjá okkur fserðu umhverfisvænar hreinlætisvörur og matvörur sem þú getur treyst. • lífrœnt rcektaöar kornvörur • lífrœnt rœktaö grœnmeti og ávexti • unnar matvörur úr lífrœnt rcektuöu hráefni og án allra aukaefna • umhverfisvcenar hreinlcetis- og snyrtivörur sem hafa ekki verið prófaðar á dýrum. - sápur, sjampó, olíur, krem o.fl. - þvottaduft í þvottavélina og uppþvottavélina - þvottalög í uppþvottinn Hreinlcetisvörurnar eru án fosfata, án gervi tensíöa, án ensíma, án ilmefna, án bleikiefna. YGGDRASILL, Kárastíg 1 - Sérverslun meö heilsuvörur Opiö 12-18 virka daga og laugardaga 11-13, sími 624082 25

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.