Vera - 01.04.1991, Page 30

Vera - 01.04.1991, Page 30
ÍETTA EfllfnTT Hf| í Melaskóla hjó Sigríöi Eiríksdóttur sem var góöur kennari og Kvennaskólastúlkur glaöar í bragði. Ég er lengst til vinstri. jókvœö manneskja. komast út í heim. Það voru áhrif frá afa, hann var búinn að fara svo víða. Hann fór til Kanada, Ungverjalands, Egyptalands og ísrael, staða sem fólk ferðaðist varla til á þeim tíma. Ég lifði mig inn í ferðasögur hans og þegar við fermdumst jjrjár systkinadætur bauð hann okkur í hringferð með Heklunni. Það var mjög óvenju- legt að fólk notaði skipið til skemmtiferða og Skipaútgerð ríkisins notaði okkur í auglýs- ingu! Við fórum hringinn og lifð- um það af þó við værum sjóveikar! Ég var alltaf ákveðin í að ferðast og ég man hvað mér fannst það hræðilegt þegar tvær skólasystur mínar úr Kvennó giftu sig strax að skóla loknum. Ég býst við að ég hafi ferðast meira en títt var um stúlkur á þeim tíma. Ég fór fyrst út 1957 með Norræna félaginu. Árið eftir fór ég í enskunám til Englands en þess á milli vann ég hjá Útlendingaeftirlitinu. Með þeirri vinnu var ég farfugla- mamma í sjálfboðavinnu. Þá var farfuglaheimili í Austurbæjar- skólanum og við vorum tvær sem skiptumst á að skjótast þangað í hádeginu og á kvöldin, opnuðum og lokuðum og fýlgdumst með að allt væri í lagi. Þar kynntist ég góðu fólki, aðallega piltum, sem ég skrifaðist svo á við. Á ferðum mínum heimsótti ég marga þeirra og mæðurnar tóku mér allar svo vel, héldu að ég væri tilvonandi tengdadóttir, en svo var nú alldeilis ekki. Ég fór í lengsta ferðalagið árið 1960. Þá var ég búin að ákveða að fara í Húsmæðrakennaraskólann og mér fannst óbærilegt að vera Ég er því alin upp viö umrœöur um kvenréttindi og þaö hefur eflaust haft mikil óhrif á mig. Ég hef aldrei haft neina minnimáttarkennd gagnvart karlmönnum. Fröken Helga brýndi einnig fyrir okkur aö vió œttum aö sœkja Garösböllin og ná okkur í embœttis- menn! að fara í skóla og fannst ég þurfa að gera svo margt áður! Þess vegna fór ég út í febrúar og var um tíma hjá vinum pabba í Þýskalandi og ferðaðist svo um alla Evrópu, stundum í lestum, með flutningabílum eða bara á puttanum. Ég sendi mömmu nákvæm bréf og sumt var skrifað með blýanti svo hún gæti strokað það út áður en hún læsi bréfið fýrir þau hin. Eflaust hefur hún oft verið hrædd um mig. Ég man hins vegar bara einu sinni eftir þvi að hafa verið smeyk. Þá fór ég frá Ítalíu til Spánar með inn- flytjendaskipi sem var á leið til Ameríku. Ég var auðvitað á þriðja farrými en þótti eitthvað aðeins finni en hinir og var því boðið að sitja til borðs með stýrimann- inum. Við Gíbraltar kom bátur að sækja þá sem ætluðu í land en það reyndist þá bara vera araba- höfðingi með kvennabúrið sitt og ég! Ég hafði auðvitað heyrt um hvíta þrælasölu og það flaug um huga minn: Ef báturinn fer til Afríku þá spyrst ekki meira til mín. Ég var mikið fegin að sjá Breta um borð í bátnum. Ég hitti svo íslenska vinkonu mína í Sevilla og hún færði mér peninga, ekki veitti af því að ég átti aðeins fimm dollara eftir. Ég byijaði svo um haustið í Húsmæðrakennaraskólanum. Námið tók tvö ár og eitt sumar sem við dvöldumst á Laugarvatni. Þetta var góður tími. Við vorum þrettán og höldum enn hópinn. Þær komu meira að segja að heimsækja mig einu sinni í Jóns- hús. Fröken Helga Sigurðardóttir vildi að skólinn væri háskóladeild og þeir sem kenndu bóklegu fögin voru háskólakennarar. Við feng- um mjög góð réttindi eftir svona stutt nám. Fröken Helga brýndi einnig fýrir okkur að við ættum að sækja Garðsböllin og ná okkur í embættismenn! Þegar við útskrifuðumst lenti ég í minni fyrstu baráttu gegn óréttlæti. Þijár skólasystur mínar voru látnar falla. Ég segi látnar falla því það var einmitt það sem gert var. Þær voru teknar of ungar inn i skólann og ein var ekki með gagnfræðapróf en þetta var vitað þegar þær komu inn í skólann og var þar af leiðandi ekki þeirra sök. Við mótmæltum allar en það hafði ekkert að segja. Að skóla loknum fór ég að vinna hjá Ferðaskrifstofu ríkisins. Ég var á skrifstofunni en var oft gripin og send sem fararstjóri t.d. á Gullfoss og Geysi. Þá var ég einnig stundum á Hveravöllum þar sem ég sá um mat handa ferðamönnum. Það varð til þess að ég lenti í göngum með Hún- vetningum og það var sannkallað ævintýri fyrir mig! Ég fór aftur með þeim tveimur árum síðar og enn þegar ég hitti þá eða eiginkonur þeirra er ég kölluð Gangna-Gunna. Það er annað heiðursheitið mitt. Um haustið var ég beðin um að vera skólastjóri Húsmæðraskól- ans á Hallormsstað í einn vetur. Það var ljómi yfir Hallormsstað því þar höfðu mamma og pabbi kynnst og ég hefði fæðst fyrir austan ef slysið hefði ekki kallað þau suður. Ég lét því tilleiðast einkum af því að skólasystir mín og vinkona gat komið með mér

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.