Vera - 01.04.1991, Síða 35

Vera - 01.04.1991, Síða 35
ÚR LISTALÍFINU verðugt íyrir leikkonuna og sem fyrr setur formið hömlur á efnið. Auk þessa er likt og Guðbjörg losni ekki nægilega vel við ungu stúlkuna Sylvíu og kemur ekki almennilega til skila breytingunni í tveggja barna móður. Leikmynd sýningarinnar er vægast sagt hræðilega ljót. Kolsvartir veggir, gólf og loft og í miðju tveir stórir, kuldalegir vinnupallar sem gætu verið kórpallar sem er hætt að nota. Sérstakur höfundur hreyf- inga vann að sýningunni og þess vegna er erfitt að segja til um hvort hún eða leikstjórinn er ábyrg íyrir stöðugu og mjög truflandi ferðalagi leikkvenn- anna með pallana fram og aftur, hlaupandi i kringum þá eða klifrandi upp og niður og á milli þeirra. Að öllum líkind- um hefur höfundur hreyfinga verið kallaður til vegna þess að leikstjóri hefur ætlað að beita þeirri hæpnu leið að breyta leikgerð í leikrit. Lýsingin er góð þá sjaldan hún er notuð til þess að dýpka leikmyndina og túlka verkið. Tónlistin í sýn- ingunni er mjög falleg og ýtir undir tilfinningaólguna en hefði mátt heyrast oftar og meira. Þýðing á texta og ljóð- um er ágæt og er alveg synd að ekki skuli vera meira af ljóð- um í verkinu. Sýningin hefur yrfir sér fljót- færnislegt yfirbragð útvarps- leikgerðar sendibréfa sem hefur verið breytt í sviðsverk. Mjög slæmt var að heyra leikkonurnar mismæla sig hvað eftir annað. Leikur Helgu og Guðbjargar er þó mjög góð- ur og eftir stendur í hugum áhorfenda togstreita og ör- vænting hinnar tiifinningariku skáldkonu Sylvíu Plath og heljarmikill sársauki móður sem fékk ekki við neitt ráðið. Hrund Ólafsdóttir ma LÆKNISMATTUR Listarinnar Hvernig stendur á því að svona ung kona hefur gengið í gegnum svo mikla þjáningu?" spurðu tvær eldri konur sem litu inn í FÍM- salinn við Garðastræti einn limmtudagseftirmiðdag í fe- brúar þegar Kristín Andrés- dóttir var að opna þar sýn- ingu. „Stef um mannlega þján- ingu“ kallaði hún þessa fyrstu einkasýningu sína. Daginn eftir opnunina hitti VT2RA Kristínu á myndarlegu heimili hennar í Breiðholtinu. Veggina piýða myndir frá myndlistar- skólaárunum og listaverk níu ára gamals sonar hennar frá ýmsum aldursskeiðum. Á meðan við komum okkur fyrir í viðarsófasettinu tölum við um tómleikann sem oft hellist yfir fólk þegar einhverju stór- verkefni er aflokið, en Kristín lýsir líka gleði sinni og undrun yfir því að hafa þegar selt fjórar myndir. Þannig hefur hún fengið fyrir leigunni á sýningarsalnum, sem hún bjóst alls ekki við að gera. En fyrst og fremst tölum við um ástæðu sýningarhaldsins og undirrót sköpunar Kristínar - baráttu hennar við geðsjúk- dóma. „Mér líður stundum svona þegar ég kem frá lœkninum. Mér finnst ég vera í böndum að hrapa og tunna að velta yfir mig." Mynd: Anna Fjóla Gísladóttir. Kristín hefur fengist við myndlist alla sína ævi. Sjö ára gömul hóf hún hám í barna- og unglingadeifdum Mynd- lista- og Handíðaskóla íslands og stundaði það fram að landsprófi. Árið 1979 tók hún stúdentspróf frá listabraut Fjölbrautarskólans i Breiðholti, en gerði svo fimm ára hlé á námi vegna húsbygg- ingar, barneigna og brauð- strits. Síðan hóf hún nám við MHÍ og lauk þaðan mynd- menntakennaraprófi fyrir fjór- um árum. Sem ungbarn var Kristín mjög þægileg og fyrirferðarlítil. Hún krafðist ekki þeirrar at- hygli sem hún kannski hefði þurft á að halda. Þegar hún stækkaði þótti hún vera fyrir- myndarbarn - dugleg, sam- viskusöm og áreiðanleg. Þó átti hún við dálitla erfiðleika að stríða í skóla. Hún átti svo erfitt með að halda sér vakandi. - Ég svaf alltaf fýrstu tvo tímana í skólanum, segir hún. Þess vegna kom ég mér upp ákveðnu kerfi. Ég sat með opna bók íyrir framan mig, vinstri olnbogann á borðinu og höndina fýrir augunum. Þann- ig svaf ég. Krakkarnir vissu af 35

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.