Vera - 01.06.1992, Page 7

Vera - 01.06.1992, Page 7
I BLIÐU O G STRIÐU Karlmenn eru flestum konum hugleiknir og VERA hefur nokkrum sinnum gert þeim ítarleg skil. Má þar nefna þema desemberblaðsins 1987 Neyðaróp... eða stríðsyfirlýsing þar sem fjallað er um bók Share Hite Konur og ást - bylting i burðariiðnum. Sú bók vakti á sínum tíma töluverða athygli vestan hafs og austan enda voru niðurstöðurnar allskuggalegar, en í Ijós kom að konur voru fokreiðar út í karlmenn og margar komnar á fremsta hlunn með að gefa þá upp á bátinn sem félaga og ástvini. Umfjöllun Veru vakti það mikla athygli, að fyrsta tölublað næsta árs var tileinkað hlutverki karla í kvenfrelsisbaráttu. Þar segir m.a. að upphafið að breyttri stöðu kynjanna og bættum sam- skiptum þeirra sé að leita í persónulegu sambandi karls og konu. „Ef þau geta ekki staðið jafnfætis heima er spurning hvort þau geti það úti í þjóðfélaginu. Ef aftur á móti kvenfrelsisbaráttan er farin að bera árangur í einkalífi fólks þá er jafnvel ekki eins langt í land og við höldum.“ Síðan eru liðin fjögur ár og mörgum þykir terðinni miða hægt. Grein Eyjólfs Sturlaugs- sonar í síðasta jólablaði, lesendabréf sem okkur bárust frá tveimur körlum í kjölfar hennar og sú staðreynd að félagsmála- ráðherra hefur sett á laggirnar nefnd til að kanna stöðu karla í breyttu samfélagi, ýtti rækilega við okkur. Hver er staða íslenskra karla? Eru þeir á krossgötum eða í krísu? Óttast konur gagnbyltingu? Hvernig vilja konur hafa karlmenn? Hvaða kröfur gerum við til þeirra sem þeir standa ekki undir? Viljum við mjúkan Tarzan sem vinnur ekki eftirvinnu eða hinn svokallaða „Sissý“ sem axlar fulla ábyrgð á fjölskyldu sinni, situr stundum heima yfir sjúkum börnum og verður fyrir bragðið að þola háð og spott vinnufélaganna? Leiðir hefðbundið uppeldi drengja til þess að karlmenn verða andlegir og fjárhagslegir taparar sem geta ekki tjáð tilfinn- ingar sínar og myndað tengsl við annað fólk? Byggist sjálfsímynd og sjálfsvirðing íslenskra karla eingöngu á vinnunni? í leikritinu M. Butterfly, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu sl. vetur, er brugðið á leik með hugmyndir okkar um hvað er kvenlegt og karlmannlegt. Aðalpersónan, karlmaður sem villir um fyrir ástmanni sínum árum saman svo hinn síðarnefndi elskar hann sem konu og telur hann m.a.s. vera barnsmóður sína, segir á einum stað að ástæðan fyrir því að karlmenn leiki öll kvenhlutverk í Þekingóperunni sé sú að karlmenn einir viti hvernig konur eigi að vera. Ef lesendum þykir óeðlilegt að við skilgreinum hér karla út frá okkar forsend- um svörum við í sama dúr. Konur einar vita hvernig karlmenn eiga að vera. □ RV 7

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.