Vera - 01.06.1992, Qupperneq 8

Vera - 01.06.1992, Qupperneq 8
VEINAR í SÁLARHÁSKA? Allt frá því að jafnréttisbaráttan hófst á íslandi hafa konur verið að vinna að þvi að leiðrétta þá mismunun sem þær verða íyrir vegna kynferðis síns. Þær hafa verið að stokka upp hin hefð- bundnu kynhlutverk og fjöl- skyldumynstur og skapa ný lífsviðhorf. Enda þótt megin- áhersla kvennahreyfingarinnar hafi verið staða kvenna, hafa konur lengi sagt að skipulag karl- veldisþjóðfélagsins skaði bæði kynin. En karlar hafa ekki viljað hlusta á svoleiðis „kvennakjaft- æði“ og righalda í gömlu gildin. Þar til nú að karlar virðast vera að vakna af Þyrnirósarsvefni sin- um og i einhverjum mæli farnir að átta sig á því að þeir tapa líka á þessu kerfi sem þeir leggja sig í líma við að viðhalda. Jóhanna Sigurðardóttir, félags- málaráðherra, stofnaði opinbera nefnd 24. október síðastliðinn sem hefur það markmið að ná fram jafnari verkaskiptingu og ábyrgð á heimilum og á vinnu- markaðnum. Nefndin efndi svo til ráðstefnu í lok maí, til að viðra staðreyndir og hugmyndir um stöðu karla í íslensku samfélagi. Áhugi karla á þessu máli getur varla talist mikill því á ráð- stefnunni voru konur í miklum meirihluta. Karlar voru um 40 prósent þátttakenda. Á ráðstefnunni voru lagðar fram ýmsar staðreyndir um til- vistarkreppu karla. Þeir vilja ekki lengur uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til þeirra bæði af kon- um og vinnumarkaðnum. Fýrir- lesarar gerðu hinsvegar lítið til þess að kryfja málin eða koma með tillögur til úrbóta. Enn er eftirfarandi spurningum ósvarað: Eru karlar sáttir við að vinna um 50-60 stunda launaða vinnuviku meðan börnin þeirra eru ung? Vilja þeir vera heima til að kynn- ast börnum sínum án þess að setja fjárhag fjölskyldunnar í hættu? Eru hugmyndir þeirra um karlmennskuhlutverkið þeim fjötur um fót? Eiga karlar ekki rétt á því að vera tilfinningaverur eins og konur? Vilja karlar verða sjálfbjarga og taka ábyrgð á lífi sínu? Hvernig tapa karlar á því kerfi sem karlveldið byggir á? Vilja þeir breyta því? Vilja þeir leggja eitthvað á sig til að gera líf sona sinna betra en þeirra eigið? Enn sem komið er verða konur að vera bjartsýnar og vona að þetta sé byrjunin á aukinni umræðu um stöðu karla þar sem þeir leita lausna sem við getum öll unað við. Erlendis er umræðan komin lengra. í Svíþjóð og Noregi hafa opinberar nefndir verið starf- ræktar síðan 1985 og annars staðar á Vesturlöndum hafa karlahreyfingar sprottið upp þó svo að þær séu flestar smáar í sniðum enn sem komið er. Bandaríkjamenn hafa verið dug- legastir við að gefa út bækur um sérmálefni karla fyrir karla og komst bókin Iron John eftir ljóðskáldið Robert Bly, sem er jafnframt einn af frumkvöðlum karlahreyfingarinnar þar, á met- sölulista. Nefndirnar á Norður- löndunum hafa komið hugmynd- um sínum á framfæri við fjölmiðla og á vinnustöðum í formi stuttra leikþátta. Leikþættirnir eru svip-

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.