Vera - 01.06.1992, Side 12

Vera - 01.06.1992, Side 12
í JL LEIT AÐ KARLMENNSKUNNI Eru karlmenn yflrleitt kúgaðir af mæðrum sínum, dauðhræddir við konur og hafa ekki græna glóru um hvað það felur í sér að vera karlmaður? Þetta virðist, að lauslega athuguðu máli, vera megininntakið í kenningum nýju karlahreyfingarinnar sem á rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna. Upphafsmaður hreyfingarinnar, Robert Bly, heldur þvi fram að tími sé kominn til að karlar endurmeti stöðu sína í sam- félaginu eftir áratuga kvenfrelsis- baráttu. Karlar séu í raun með mjög óljósa sjálfsímynd, þeir geri örvæntingarfullar tilraunir til þess að þóknast mæðrum sínum og ástkonum. Þeir reyna að vera „mjúkir“ og uppfylla tilfinninga- legar þarfir kvenna, en sökum þess að þeir eru í svo litlum tengslum við eigin tilflnningar er svo komið, segir Bly, að meirihluti karla er að breytast í vælandi mömmudrengi sem engin kona með sjálfsvirðingu lítur við. En það er til lækning við öllum mannlegum meinum og eins og margir vita hafa Bandaríkjamenn verið iðnir við að setja á laggirnar sjálfshjálparhópa til að taka á hinum ólíkustu vandamálum. Og nú geta karlar farið á helgar- námskeið og leitað að karl- mennskunni í sjálfum sér. Að sögn þeirra sem standa fyrír námskeiðunum, en það eru að sjálfsögðu íylgismenn Roberts Blys, er fyrirmyndin sótt til innvigsluathafna sem tíðkaðar eru í mörgum samfélögum, þar sem drengir eru numdir á brott úr kvennaheimum og „fæðast“ aftur inn í samfélag karla. Markmið námskeiðanna er að gera körlum kleift að komast í tengsl við dýpstu tilfinningar sin- ar, að villimaðurinn sem blundar í bijósti sérhvers manns (að mati Bly og félaga) lifni við og fái að njóta sín. Karlarnir koma saman, dansa í kríngum eld, beija trumbur og senda mæður sínar út í ystu myrkur á táknrænan hátt. Þeir fara saman í gufu, gráta örlög sín og ósigra, hleypa út tilfinningum sínum og sársauka og koma, að sögn, til baka heilsteyptari menn. Saman við þetta er blandað hæfilegu magni af goðsögum og ævintýrum úr menningararfi Vesturlanda til að helgin fái á sig dulúðugan blæ. Eru karlmenn yfirleitt kúgaðir af mæðrum sínum, dauðhræddir við konur og hafa ekki græna glóru um hvað það felur í sér að vera karlmaður? Við íyrstu sýn virðist sem hin nýja karlahreyflng beini spjótum sínum að konum. Sálarkreppu karla megi rekja til uppeldisins sem konur hafa auðvitað haft á sínum herðum. Fjarvera karla frá heimilinu og nánasta umhverfi barna geri það að verkum að synir þeirra lifi í veröld þar sem hugmýndir og tilfinningar kvenna eru í fyrirrúmi. Margt það sem miður fer í lifl kvenna rekja þær til samskipta sinna við karla og togstreitan á milli kynjanna verður m.a. til þess að konur reyni að ala upp „öðruvísi“ menn en eiginmenn sína og elskhuga. Afleiðingin fyrir drengina verður sú, að þeir alast upp án nauð- synlegra fyrírmynda og jafnvel með sektarkennd yflr kynferði sínu. Sem betur fer telja þeir, sem aðhyllast þessa hugmyndafræði, að karlar verði að leysa þetta vandamál með þvi að taka upp annan lífsstíl sem felst m.a. í þvf að taka virkari þátt i uppeldi sona sinna, enginn geti kennt þeim að verða menn nema feðurnir sjálfir. Dregin er upp rómantísk mynd af hinu hefðbundna samfélagi, þar sem faðir og sonur starfa saman og sá yngri lærir til verka af föður sínum. í leiðinni skapast þessi tilfinningalega nálægð sem er svo æskileg fýrir þroska einstaklings- ins og drengir fá einnig að vita hver réttindi þeirra og skyldur sem karlmanna eru í sam- félaginu. Bandarískir karlar virð- ast því vera að segja lifnaðar- háttum sem tíðkast viða á Vestur- löndum stríð á hendur, setja spurningarmerki við kynhlutverk sem þeir eru aldir upp við og eru jafnvel farnir að efast um þá lífsfyllingu sem sigrar á atvinnu- markaðinum veita á kostnað heimilislífsins.

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.