Vera - 01.06.1992, Page 14

Vera - 01.06.1992, Page 14
Það er nóg til af „korterfyrirþrjú- körlum" ó börum bæjarins en þeir eru upp til hópa fremur óspennandi og margir orðnir ansi þreyttir og ofnotaðir. FÁTT UM / DRÆTTI Guðrún strunsaði út af barnum og lýsti því yfir við dyravörðinn að hér væru dreggjar mannfélagsins samankomnar og hún væri farin heim að sofa. Soffía heyrði orð hennar þar sem hún stóð í biðröðinni og ákvað að slást í för með henni. Sannleikurinn var sá að hún nennti ekki „út að skemmta sér“ með einni sem var að svipast um eftir ákveðnum manni, annarri sem var nýkomin á fast og taldi sig því vera úti á lífinu á „allt öðrum forsendum" en þær hinar og þeirri þriðju sem var tiltölulega nýskilin og á karlaflippi. Á leiðinni heim til Guðrúnar fjölgaði í hópnum og það voru sjö konur sem sátu lengi nætur og ræddu hið hræðilega ástand sem ríkir í karlamálum reykvískra kvenna. Þó konur langi til að slá sér upp þá er fátt um fína drætti. Það er nóg til af „korterfýrirþrjúkörlum" á börum bæjarins en þeir eru upp til hópa fremur óspennandi og margir orðnir ansi þreyttir og ofnotaðir. „Það er boðið upp á námskeið í öllu mögulegu og ómögulegu, hvernig væri að bjóða upp á eitt fyrir konur í karlaleit?" spurði ein og fór þegar að skipuleggja nám- skeiðið í grófum dráttum. „Að hveiju eru konur að leita? Hvern- ig mann viltu fá og hvar eru mestar líkur á að hann haldi sig? Og hvernig getur þú náð í hann - og haldið í hann? Auðvitað þyrfti námskeiðið að vera tvískipt, eitt fýrir þær sem eru að leita að elskhuga til að sofa hjá annað slagið og spóka sig með í boðum og svo annað fyrir hinar sem eru að leita að hinum eina rétta.“ Hér verður ekki allt rakið sem sagt var þessa vornótt og óvist er hvort námskeiðið verði nokkurn tíma haldið, eins þarft og það eflaust er. En það er staðreynd að fjöl- margar konur eru dæmdar til skírlífis af þeirri einföldu ástæðu að það eru allt of fáir bitastæðir karlmenn á markaðnum. Hér eru eingöngu hafðir í huga „iausir og liðugir“ karlar, en eins og við vitum þá eru allt of margir kvæntir menn sem haga sér eins og þeir væru á lausu og eru iðnir við að bjóða öðrum konum karlmennsku sína. Þær sem hafa ekki áhuga á samneyti við slíka kumpána skera markhópinn sjálfkrafa töluvert niður. Það er tölfræðilega sannað að það eru fleiri konur en karlar í Reykjavík. En það er óhugsandi að allir karlar í Reykjavík séu fráteknir eða hommar og hvar leynast þá hinir einhleypu? Hvar er hægt að kynnast þeim? í gegnum stefnu- mót útvarpsstöðvanna, á ölstof- um bæjarins, í blönduðum kór eða í helgarferðum ferðafélag- anna? Það er hæpin lausn að 14

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.