Vera - 01.06.1992, Qupperneq 16
Hvernig stendur á
því að sumir ganga
út aftur og aftur
án þess að nokkuð
sé i þá spunnið
á meðan aðrir hafa
engan sjéns?
þann sem hjartað þráði, pipruðu
eða fluttu á brott. Helsta von
einhleypra þorpsbúa var að
einhver flytti í þorpið þvi iítið var
um makaskipti á milli húsa. Nýir
kennarar voru t.d. mjög eftirsóttir
og þegar vinnuflokkar voru í
nágrenninu þótti bera vel í veiði.
Enginn amaðist við þessum
pörunaraðferðum fyrr en hópur
franskra vísindamanna átti
sumardvöl í þorpinu. Þá var
fenginn lögregluþjónn úr Reykja-
vík til að halda uppi lögum og
reglu í þessum annars friðsæla
bæ og útgöngubann var sett á
stúlkur á ákveðnum aldri. Lag-
anna vörður sat i bíl uppi í fjalli
og fylgdist í sjónauka með húsinu
sem hýsti Fransmennina. Hann
kom síðan á slaginu tíu og rak
þær heim sem þar voru! Ég var
sjálf of ung til að leggjast í
Frakkana en sögurnar lifðu lengi
góðu lífi og mér skildist að þetta
hefði slegið sjálft „ástandið" út.
Eg veit ekki hvort fyrrnefnd bók
Hannesar Jónssonar er kennd
einhvers staðar, en þó margt sé
fjarska gamaldags og vitlaust í
henni veltir hann upp ýmsu um
samskipti karls og konu sem
hollt er að hugsa um. Það er
nefnilega viða pottur brotinn í
þessum efnum. Margir kynnast í
skóla eða í vinnu en ef úttekt væri
gerð á fyrstu kynnum íslenskra
hjóna kæmi eflaust í ljós að flestir
byrja saman á böllum/börum
undir áhrifum áfengis.
Útlend kona, sem dvaldi hér
um árabil, átti í mestu erfið-
leikum með að átta sig á hegð-
unarmynstrinu hér. Hún var vön
því að kynnast karlmanninum
fyrst, fara með honum út að
borða nokkrum sinnum, jafnvel í
leikhús eða á tónleika, áður en til
tals kom að sænga saman. Hún
komst fljótlega að þvi að hér gilda
allt aðrar reglur og þó að fólk sofi
saman þarf það ekki að tákna
neitt, en ef það fer saman í bíó þá
er alvara á ferð. Hún kvartaði
mikið yfir því að hér vantaði
„stefnumótamenningu" þar sem
fólk gæti kynnst án þess að verða
að rjúka í rúmið strax fyrsta
kvöldið.
Viðhorf kynjanna til kynlífs
virðast mismunandi. Það er
útbreidd skoðun að konur fái
samviskubit eftir skyndikynni og
njóti þeirra síður en karlar. Kon-
ur virðast eiga erfiðara með að
aðgreina ást og kynlíf og ef allt
þrýtur ímynda þær sér að þær
séu a.m.k. skotnar í þeim sem
þær sváfu hjá. Sumar hafa það
mottó að sofa aldrei hjá manni
nema að þær geti hugsað sér
hann sem föður barna sinna og
hangir það eflaust á sömu spýtu
og sú undarlega árátta margra
kvenna að flnnast þær verða að
eiga börn með öllum mönnum
sem þær elska, annars sé ástar-
sambandið ekki fullkomnað.
Bærinn er fullur af frambæri-
legum konum, gáfuðum, glæsi-
legum og skemmtilegum. Margar
þeirra eru í karlaleit, sumar hafa
áhuga á skyndikynnum, aðrar
leita að einhveijum nógu spenn-
andi til að spóka sig með í boðum
og eiga vitsmunalegar samræður
við eftir ástríðufulla ástarleiki og
enn aðrar eru að leita að hæfum
eiginmanni og barnsföður. Enn
gildir hið fornkveðna „leitið og þér
munið finna", en þvi miður
virðast konur þurfa að leita langt
yfir skammt. Líklega er eina ráðið
að hefja stórfelldan innflutning á
karlmönnum og heyrst hefur að
um þessar mundir gangi góður
póstlisti kvenna á milli. □
RV
í SÁTT
OG SAMLYNDI
JVIargar furðulegar sögur eru
til af samskiptum kynjanna.
Ein sú betri er af Ellu og Stjána
sem byrjuðu saman sautján
ára, hættu nokkrum sinnunr
en töldu sig ekki getað lifað
hvort án annars og giftu sig.
Eftir nokkurra ára hjónaband
fór þó svo að Ella varð bálskotin
í Gulla sem bjó í sama bæ. Þau
skelltu sér saman í þriggja
vikna ferð til Spánar þar sem
nágrannar beggja lágu á nær-
liggjandi sólstólum en föttuðu
ekki neitt. Stjáni hélt að frúin
væri með vinkonu sinni og var
voða glaður þegar hún kom
heim brún og sæt. í ljós kom að
Ella var ólétt og þegar hún var
komin á sjötta mánuð stundi
hún jrví upp við eiginmanninn.
Hann tók því fremur vel en setti
þau skilyrði fyrir áframhald-
andi hjónabandi þeirra að hún
hætti við Gulla og hann skipti
sér ekkert af barninu. Hún
samþykkti það en Gulli sætti
sig engan veginn við úrslitin og
sótti fast. Hún var satt best að
segja afskaplega hissa þegar
fólkið hans Stjána mætti ekki í
þrítugsafmælið hennar, en
vinkona hennar benti henni á
að sagan væri farin að kvisast
unr bæinn. Rétt áður en barnið
fæddist flutti hún til Gulla en
fór daglega og eldaði fyrir
Stjána og tók til. Hún var svo
heppin að þau bjuggu öll i
sönru götu og því var stutt fyrir
hana að fara. Gulli var frekar
óhress með vinnuálagið á há-
óléttri konunni og heimsótti
Stjána til að gera út um málin.
Hann pakkaði niður helstu
eigum barnsmóður sinnar og
tók með sér. Þegar barnið
fæddist var það að sjálfsögðu
skráð sem barn löglegs eigin-
manns sem fékk þar með
barnabætur og annað sem ríkið
skammtar foreldrum. Síðast
jregar fréttist var Gulli að garfa
í þessum rnálum en Ella hefur
nóg að gera að sinna þeirri litlu
og satt að segja laumast hún
enn til Stjána svona rétt lil að
halda í horfinu hjá honurn. □