Vera - 01.06.1992, Blaðsíða 17

Vera - 01.06.1992, Blaðsíða 17
Ljósmynd Þórdís Ágúsdóttir KONUR Í KARLAMÓRAL Nú á dögum telst þaö til undantekningar ef talaö er um heföbundin kvenna- og karlastörf. Þaö er til dœmis aldrei auglýst eftir starfs- stúlkum, heldur starfsfólki, í þ^greiöslu- og þjónustustörf. A yfirþoröinu er því haldið fram aö konur geti gengiö inn í öll „karlastörf" og öfugt. En er raunin sú? Býst fólk viö því aö sjá unga stúlku í skipaviðgerðum? Býst fólk viö því aö stúlkuandlit komi í Ijós þegar rafsuðuhjálminum er lyft frá andlitinu? Piltar og stúlka í verknámi Ég hóf nám í vélsmíði haustið 1985 við Fjölbrautaskóla Vest- urlands og fór svokallaða verknámsleið, það er að segja sex annir í bók- og verklegum greinum, svo í átján mánuði á vinnustað til að ljúka tilsettum tíma fyrir sveinspróf. Kenn- ararnir tóku mér einstaklega vel svo og strákarnir sem voru með mér í bekk. Ég sé ekkert benda til þess að mér hafl verið hlíft á nokkurn hátt þó svo að ég væri eina stúlkan í bekknúm, jafnvel að frekar haíi verið ætlast til meira af mér; til dæmis var ég yflrleitt látin prófa íyrst þegar við vorum að læra eitthvað nýtt. Bekkurinn var mjög sam- heldinn og við vorum ávallt hvert öðru innan handar ef eitthvað bjátaði á í verk- náminu. Einn bekkjarfélagi minn lauk vélsmíðinni í öðrum skóla og sagði mér síðar að það sem kom honum einna mest á óvart þar, var samstöðuleysi bekkjarins, hversu lítið þeir voru fyrir að rétta hver öðrum hjálparhönd. Við vorum þá sammála um að nærvera kven- manns hefði haft mikil áhrif á starfsandann. Það virtist sem að vegna nærveru minnar hafl þeir þorað að viðurkenna eigin vanmátt þegar það átti við, þorað að biðja um hjálp. En þegar komið er út í raunveru- leikann, það er á vinnumark- aðinn, virðast hlutirnir snúast við. Er konan lækninýjung? Ég hef unnið á þremur vinnu- stöðum, íslenska Járnblendi- félaginu, Þorgeiri og Ellert á Akranesi og Stálsmiðjunni í Reykjavik. Mér var alltaf vel tekið og boðin velkomin. Flestir virtust vera ánægðir með að fá kvenmann inn á verkstæðið. Á einum staðnum var mér tjáð að ég hefði góð og bætandi áhrif á talsmátann. 17

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.