Vera - 01.06.1992, Qupperneq 23

Vera - 01.06.1992, Qupperneq 23
leiðinni kenni ég konum að taka stefnu með áttavita og lesa af korti. Á náttstað tala ég um hvernig á að finna góðan tjaldstað og hvaða aðferð er best að nota til að tjalda hinum mismunandi tjöldum. Svo eldum við matinn á prímus." Vilborg hefur stundað tjaldúti- legur frá barnsaldri. „Ég fór alltaf með mömmu og pabba í útilegu og þau kveiktu áhugann hjá mér. Ég fór svo í Alpaklúbbinn til að komast á þá staði sem ég komst ekki með foreldrunum," segir Vilborg. Hjá Alpaklúbbnum lærði hún íjallamensku eins og hún stundar hana í dag. „Ég lærði á áttavita, klettaklifur, ísklifur og snjóhúsagerð til að nefna eitt- hvað“ segir hún. Einnig var hún lengi í björgunarsveitinni Ingólíi °g fór í marga björgunarleiðangra UPP á hálendið. Undanfarin tíu ár hefur Vilborg verið leiðsögu- niaður á sumrin fyrir erlenda fjallgöngugarpa sem ganga í tíu daga frá Veiðivötnum norður á Mývatn með mat og allan úbúnað á bakinu. „Þeir verða alltaf svolítið hissa þegar ég kem og kynni mig sem leiðsögumanninn þeirra, en svo þegar ferðin er búin eru þeir mjög stoltir yíir því að hafa arkað um hálendið með islenskri konu,“ segir Vilborg og hlær. Fjöldi greina hafa verið skrifaðar í frönsk og ítölsk fjallatímarit um ferðir hennar. Vilborg er tveggja barna móðir og segir að hún fái mikið út úr því að fara á fjöll þvi það sé svo mikil tilbreyting frá hinu daglega amstri borgarlífsins. „Konur læra að treysta á sjálfa sig og komast í snertingu við náttúruna og njóta hrikalegrar fegurðar hennar," segir Vilborg. Konur sem hafa áhuga á að komast í svona helgarferðir geta haft samband við Vilborgu í síma 682504. □ ÞB

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.