Vera - 01.06.1992, Page 32
I L E I T A Ð
Þolendur sifjaspella
eiga oft í erfioleikum
með að mynda
tilfinningatengsl við
karlmenn, enda hafa
þær sem börn verið
sviknar af karlmanni.
Bandaríska kvikmyndin „Létt-
lynda Rósa“ gerist á kreppu-
árunum og fjallar um unga
stúlku, Rósu, sem kemur til dval-
ar hjá fremur umburðarlyndri
fjölskyldu í smábæ nokkrum í
Suðurríkjunum. Húsmóðirin er
að lesa undir háskólapróf en
heimilisfaðirinn rekur hótel í
bænum. Á heimilinu eru þrjú
börn og elsta barnið, 13 ára
drengur, er sögumaður og við
sjáum því flest með hans augum.
Rósa veldur miklu uppnámi hjá
fjölskyldunni meðan hún dvelst
jrar, því að hún hegðar sér ekki á
þann hátt, sem ætlast er til af
siðprúðum stúlkum. Hún sækist
opinskátt eftir kynnum við
karlmenn, bæði með framkomu
sinni og ögrandi klæðaburði,
enda stendur ekki á viðbrögðum
karlmanna.
I fyrri hluta myndarinnar sjáum
við hvernig Rósa verður yíir sig
ástfangin af heimilisföðurnum
þegar við fyrstu kynni, þvi að
hann talar hlýlega til hennar og
kallar hana rósaknúppinn sinn.
Rósa getur ekki leynt hrifningu
sinni og tjáir honum ást sína á
einlægan hátt. Ekki verður það þó
til þess að með þeim heQist ástar-
samband, en Rósa raskar greini-
lega sálarró hans. Skrautleg sam-
skipti Rósu við karlmenn verða til
þess að húsbóndinn vill reka
hana af heimilinu, en húsmóðirin
heldur ætíð hlífiskildi yflr henni.
Hátterni Rósu er ekki viður-
kennt af samfélaginu og hún á i
eilífri baráttu við almennings-
álitið. Viðhorf fólks í garð konu
eins og hennar kemur sterkt fram
í atriði þar sem læknir nokkur,
sem annast hana vegna bólgu í
eggjastokkunum, er að tala við
húsbændur hennar um mögu-
legar aðgerðir. Læknirinn, sem
þekkir Rósu frá fyrri tíð, talar
mikið um líkamlega fegurð henn-
ar við heimilisföðurinn og það
hvernig hún hegðar sér meðal
karlmanna. Hann telur hana
haldna alvarlegu hegðunar-
vandamáli sem er „brókarsótt“.
Til þess að binda enda á vanda-
málið leggur læknirinn til að allt
móðurlíf hennar verið numið á
brott með skurðaðgerð. Á eftir
verði hún ljúf kona og engum til
vandræða. Heimilisfaðirinn er
sammála lækninum enda skilja
þeir vandamál Rósu á svipaðan
hátt. Það er ekki fyrr en eigin-
konan heldur stólparæðu yfir
þeim og segir að það megi ekki
undir nokkrum kringumstæðum
svipta fátæka og varnarlausa
stúlku forræði yflr eigin líkama,
að ákvörðuninni er breytt. „Úr-
ræði“ læknisins er í raun dæmi-
gert fyrir þau viðbrögð karlmanna
að gera sér ekki grein fyrir þvi að
það er ekki Rósa sem er vanda-
málið heldur eiga karlar í erflð-
leikum með að hemja sig nálægt
henni.
Það kemur í ljós að ástæðan fyrir
því að Rósu er komið fyrir hjá
fjölskyldunni er sú að með þvi var
henni bjargað frá því að gerast
vændiskona. Rósa hrökklaðist að
heiman aðeins 14 ára gömul og
varð að sjá sér farborða með þeirri
vinnu sem bauðst. Rósa neyddist
32