Vera - 01.06.1992, Qupperneq 37

Vera - 01.06.1992, Qupperneq 37
Kristin lauk MA námi í listasögu við Sorbonne háskólann 1981 og vann samhliða að listsköpun. Lokaritgerð hennar er um sögu leirlistarinnar. Kristin var með vinnustofu í París í nokkur ár en 1985 fékk hún styrk til dvalar við Banff listamiðstöðina í Alberta í Kanada. Þar voru rúmlega hundrað listamenn frá ýmsum löndum og úr flestum listgrein- um. Banff er þvi sannkölluð Mekka listamanna. Listamenn geta sótt um styrk til hálfs árs dvalar og ef vel gengur er hægt að sækja um framlengingu. Kristin var þar í heilt ár og undi sér mjög vel. - Þegar ég fór frá íbúðinni minni og vinnustofu i Paris var ætlunin að vera aðeins eitt ár í burtu en ég er ekki enn farin til baka. Allt er breytingum undir- orpið, ég fór í framhaldsnám til Kaliforníu og flutti þaðan til íslands. Ástæðan fyrir „hliðarspori“ Kristinar er sú að í Banff kynntist hún núverandi eiginmanni sín- um Halldóri E. Laxness leik- stjóra. Þau fóru saman til Los Angeles og voru þar í íjögur ár við uám og störf. - Stefán Einar, sonur okkar, fseddist tveimur vikum eftir að ég lauk prófi. Þegar ég rogaðist inn með munina mína á lokasýning- una gerði ég mér grein fyrir þvi að formið hjá mér hafði breyst. Áður gerði ég aðallega löng, há og mjó ker en nú höfðu þau gildnað mjög rétt eins og ég. Þessi formbreyt- ing var algjörlega ómeðvituð. Kristin notar iðulega hefð- bundin form úr listasögunni en Ég tel að í hefö- bundinni leirlist tákni kerið oft lífið sjálft. verk hennar eru mjög nútímaleg. Hún leikur sér oft með andstæð- ur. Formin eru kvenleg og kraft- mikil. Öll verkin eru ílát eða ker, frá 60 uppí 85 cm á hæð. Kristin er leirkerasmiður, hefur lengi unnið sem slíkur og kerið er henni mjög hugleikið. Það er hægt að nota ker til að túlka svo margt, möguleikarnir eru í raun óþijótandi. Eitt frægasta ker sögunnar er eflaust Gral, bikar- inn sem blóð Jesús var látið drjúpa í og hinir göfugu riddarar miðalda leituðu sem mest að. Einnig er vert að minnast Gunnl- aðar sem gætti skáldamjaðarins og „bar fram lífsins vatn i gullnu keri“ eins og segir í bók Svövu Jakobsdóttur. - Kerið má túlka á ýmsan hátt. Ég tel að í hefðbundinni leirlist tákni kerið oft lífið sjálft. Og guð er talinn hafa mótað manninn úr leir. Ker voru notuð við fórnir og ósjaldan látin fýlgja með í gröflna. Mér flnnst þau vera tákn um von og ótta. Þau geta einnig verið tákn um varnarleysi mannsins. Kristin hefur bæði tekið þátt í samsýningum og haldið einka- sýningar á verkum sínum í Frakklandi, Kanada og Banda- ríkjunum. „Eftir að Stefán Einar fæddist hef ég haft svo miklu minni tíma til að vinna. Áður eyddi ég tíu til tólf tímum á dag á vinnustofunni en í vetur hef ég ekki getað sinnt eigin listsköpun eins mikið. Afköstin hafa þvi auðvitað minnkað. Ég kenndi við leirlistadeild Myndlista- og hand- iðaskóla íslands og var ráðin í sérstakt verkefni hjá Glit hf. til að hanna nýja línu. Mér flnnst bæði spennandi og krefjandi að vinna fyrir Glit. Sem listamaður hef ég alltaf unnið fyrir lítinn markað en nú verð ég að hugsa um fjölda- framleiðslu. Rétt fyrir jólin kom á markað ilmker sem ég hannaði og ýmislegt fleira er í bígerð. Ég hef alltaf unnið í steinleir og postulin en í vetur hef ég einnig unnið í jarðleir sem var nýtt fyrir mér. Það voru töluverð viðbrigði að flytja til íslands en þetta er bæði spennandi og skemmtileg reynsla. Tíminn á eftir að leiða í ljós hvort - og þá hvernig - íslandsdvölin hefur áhrif á verk mín.“ □ RV 37

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.