Vera - 01.06.1992, Side 38
BÓKADÓMAR
FJÖLLEIKASÝNING ÁSTU
og
STJÖRNUSIGLINGIN
Ævintýri Friðmundar vitavarðar
Myndir og texti
Aslaug Jónsdóttir
Mól og menning 1991
Gleðilegt er til þess að vita að
meira líf hefur nú færst í
útgáfu myndabóka með ári
hver]u. Nýir höfundar koma
fram á sjónarsviðið og meiri
rækt hefur verið lögð í val
erlendra bóka til þýðinga. í
siðarnefnda tilvikinu má nefna
höfundana Elsu Beskov
(Grænalín, Brúncdín og Bláalín)
og Ib Spang Olsen (Drengurínn
í tunglinu). Nú íýrir jólin gaf
Mál og menning út tvær
myndabækur eftir Áslaugu
Jónsdóttur, en hún hefur áður
sent frá sér bókina GullJjöðr-
ina. Þessar bækur eru mikill
fengur fyrir yngstu lesendurna
og athyglisverðar vegna þess
hve ólíkur myndskreytingastíll
birtist í hverri íýrir sig, en það
er frekar óvenjulegt.
Bókin FJölleikasýning Ástu
fjallar um litla stúlku sem
gerir ýmsar listir í afmæli móð-
ur sinnar og skemmtir þannig
gestum hennar. í byijun
bókarinnar dettur lesandinn
inn i veisluna, gestir sitja við
dúkað borð, þrjú stálpuð börn
spila á gólfinu og tala við aðra
ömmuna. Allir njóta stundar-
innar og innan skamms bein-
ist athyglin að Ástu. Hún nýtir
sér tækifærið og tekur til við að
leika hinar ýmsu listir með
hjálp leikfanga og kattar.
Áhorfendur gefa Ástu lófa-
klapp, syngja afmælissöng og í
lokin er gott að þiggja mjólk og
köku hjá mömmu.
Sagan er skemmtileg, hug-
myndin er góð. Lesandinn fær
litla kynningu á persónum,
þeim er ekki lýst neitt sér-
staklega, eru aðeins þátttak-
endur í sögunni. Aðeins er
sýnt inn í hugarheim Ástu
þegar hún fær hugmynd að
atriðum sínum og verknað-
urinn sýnir styrkleika stúlk-
unnar sem getur meira en
aldur hennar segir til um. Það
er auðvelt íýrir börn að sam-
sama sig Ástu og finna að með
eigin framlagi og hugkvæmni
er hægt að leggja sitt af
mörkum. Engin vandkvæði
eru að finna upp ný og ný
atriði og láta takast það sem
maður ætlar sér. Aukapersón-
urnar, fjölskyldan, slá nokk-
urs konar hring utan um Ástu
og uppbygging söguþráðar
grundvallast á móttökunum
sem Ásta fær. Hver atburður-
inn rekur annan í réttri röð en
eru ekki undirbúnir, þannig að
spennan eykst - hvað kemur
næst? Stígandi lýkur i há-
punkti þegar allir sameinast í
söng og hljóðfæraslætti og
endirinn ber keim af öryggi og
ánægju. Sagan gerist á stutt-
um tíma og hverjum atburði er
ætlað hæfllegt lými.
Málfar bókarinnar er kjarn-
mikið og eykur orðaforða
barnanna. Orð eins og fjöl-
leikahús, skemill, hremma,
kólfur, eru ekki kunnug litlum
börnum og því ágæt viðbót við
það sem þegar er lært. Myndir
í bókinni eru einfaldar, nálgast
skyssumyndir, dökkar útlínur
fylltar með dempuðum vatns-
litum. Flest allar eru þær tvi-
víðar og eru á hverri síðu eða
heilli opnu. Samræmi texta og
mynda er gott enda sami höf-
undur sem skrifar og teiknar.
Þó má greina ósamræmi á bls.
21 þegar hatturinn er sagður á
höfði Ástu, en hún heldur á
honum í hendinni.
Letur er skýrt, mátulega
stórt fyrir byijendur í lestri og
vel fyrir komið á síðunum.
Bókin getur hentað börnum
frá þriggja ára aldri, en út-
skýringar verða að fylgja fyrir
yngstu börnin. Allur frágangur
er mjög góður. Bókin er
innbundin og myndskreytt
bókarspjaldið gefur tilefni til
að opna bókina. Pappír er
þykkur, örlítið glansandi og
virðist endingargóður. Niður-
staðan er að enginn verður
svikinn af því að eignast þessa
bók.
Eins og áður kom fram er
bókin Stjörnusiglingin - Ævin-
týri Friðmundar vitavarðar
gjörólík Fjölleikasýningu Ástu.
Á það bæði við um texta og
myndskreytingu. Hér er sögu-
sviðið bæði tengt raunveru-
leikanum og ævintýrinu.
Friðmundur býr með Sámi
hundi sínum í einveru vita-
varðar á eyjunni Bláabergi.
Sagan íjallar um hlutverk sem
Friðmundi finnst hann þurfi
að leysa, en það er að koma
lagi á stjörnur himinhvolfsins
þegar önnur tvíburastjarnan
hafði hætt sér of langt í leik
sínum. Friðmundur og Sámur
sitja heima í vitanum í öruggu
skjóli þegar máninn gefur
skilaboð um atburðinn. Bátur-
inn er leystur og saman svífa
þeir félagar út í himinhvolfið.
Hér tekur ævintýrið við. Sögu-
þráðurinn byggist upp á röð
atburða og skiptast á lýsingar
og samtöl félaganna við per-
sónugerðar stjörnur og himin-
tungl. Spennan eykst og í
hápunkti takast björgunarað-
gerðir Friðmundar og Sáms.
Endarnir safnast saman í
sögulok þegar þreyttir ferða-
langar horfa á litlu stjörnuna
fögru, laun fyrir dygga aðstoð.
Efni þessarar sögu er
óvenjulegt og mjög hugmynda-
ríkt. Það gefur ágætt tilefni til
að börnin fái áhuga á að kynna
sér stjörnur himinsins. Text-
inn er þungur og mörg ný orð
koma fýrir þannig að varla
hentar bókin börnum fyrr en
um 5-6 ára aldur.
Persónum er ekki lýst neitt
sérstaklega en einhvern veg-
inn eru þær svo skýrar í upp-
hafi að auðvelt er að skynja
eiginleika þeirra. Samband
Friðmundar við hundinn Sám,
sem er persónugerður og getur
talað, er einlægt og vitavörður-
inn hefur þennan góða félags-
skap í einverunni. Saman sýna
þeir hvers þeir eru megnugir
og ekkert er svo erfitt að ekki
megi flnna ráð. Persónur him-
insins eru sýndar í myndum
og samræðum. Höfundi tekst
listavel að ná fram samruna
texta og mynda í órjúfanlega
heild. Ævintýrablær himin-
hvolfsins nær tökum á lesand-
anum og auðvelt er að fá sér
far í bátnum sem aukafarþegi.
Raunveruleikastíll ber mynd-
irnar uppi þó að á einstaka
stað leysist þær upp í óhlut-
bundið form. Blái liturinn er
ríkjandi og vatnslitirnir sýna
mörg litbrigði innan hans og
undirstrika í mismunandi
öðrum litum sögusvið bókar-
innar. Myndirnar eru unnar
með blandaðri tækni og eru
flestar þrívíðar. Oft teygja þær
sig yfir á næstu síðu. Texta er
vel fyrir komið og letur er
hæfilega stórt. Öll ber bókin
með sér glæsileika, innbundin
með fallegri kápu, góður papp-
ír og brot.
Það er spennandi að vita
hvað kemur næst frá þessum
höfundi.
Margrét Gunnarsdóttir
kennari við Fósturskóla íslands
Prentþjónustan hefur, eins og nafnið bendir til, sérhæft sig í undirbúningsvinnu
fyrir prentun, þ.e. í litgreiningu, ljósmyndun, filmuvinnu og setningu. Þar með er
þó ekki öll sagan sögð. Við í Prentþjónustunni erum í góðu
T"* samstarfi við auglýsingastofur, prentsmiðjur og bókbands-
% / vinnustofur og kappkostum að lcita hagstæðra tilboða, þér
V II I að kostnaðarlausu, í útlitshönnun, prentun, bókband og
▼ ^ í rattn alla þá þætti sem við framkvæmum ekki sjálfir.
* * Æ ^ A Til að spara þér sporin á milli
"I "W- W "■ prentsmiðja, auglýsingastofa
I 11 1 I II III og filmugerðarstofa,
^ -M- f |cjt að hagstæðu verði
M ^ og sem mestum gæðum, þá er bæði ódýrara og þægi-
legra að snúa sér beint til manna sem hafa góða yfirsýn
■■ I og þekkingu í veröld prentiðnaðarins. Á því sviði tekur
y ^ Prentþjónustan hf. allar áhyggjur af viðskiptavinum sínum.
sporin.
Bolholti 6 — Sími 687760
RRENT
ÞJONUSTAN
HF.
38