Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1918, Qupperneq 14

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1918, Qupperneq 14
5(5 T í M A K I T V. F. í. 19 18 munurinn í hinum ýmsu landshlutum kemur ekki verulega í Ijós fyr en farið er að liða í sundur hlut- ina; heildarheitin eru, eins og gefur að skilja, flest sameiginleg. Þeim sviðum, sem eru ný í íslensku þjóðlífi, t. d. raíl'ræðinni, mundi söfnunin ekki koma síður að haldi en hinum, nema fremur sé, af þeirri ástæðu að þau verða einmilt að draga að sér efnivið- inn i ngsmiðar sínar af öðrum sviðum — það er helsta og all'arasælasta leiðin, eins og gefur að skilja af því, sem sagt hefur verið hér að framan. A þennan hátt mundi fást yfirlit yfir iðnheiti al- þýðumálsins. Iðnheitin, sem komið hafa fram í bók- mentunum, má svo tína saman úr orðabókunum, einkum úr hinni miklu og orðauðgu orðabók Sig- fúsar Klöndals, sem nú er á næstu grösum. Að því búnu ætti ein aðalnefnd, kosin af hinum nefndun- um, að hlutast til um að samdar verði nýjar nafna- skrár og fá þær síðan samþyktar í félögunum, til þess þannig að útvega þeim bakhjarl og lífsskilyrði. Loks ælti að prenta skrárnar og koma þeim á fram- færi við hlutaðeigandi skóla, kennara og iðnrekendur. Að koma fram með þetta erindi var það sem fyrir mér vakti, þegar ég tók að mér að tala hér i kvöld. Verkfræðingafélagið er fyrir margra hluta sakir best fallið til forgöngunnar. Eg vona að það bregðist vel við verkefninu. Með því mundi það reisa sér óbrotgjarnan bautaslein við vaxtarbraut islenskrar tungu. Minning Rögnvalds Ólafssonar. Um Ijelagsmenn. Eins og áöur var getið utn hefur niinningartaflan verið sett upp á Vííilsstöðum. Jafnframt hefur verið gert minn- ingarblað með árituðum nöfnum þeirra 60 manna sem að þessu stóðu. Samkvæmt rcikningnum hafa komið inn alls kr. 1040,00, en kostnaðurinn hefur orðið kr. 920.65. (Sundurliðaður reikningur er til sýnis hjá varaformanni fjelagsins Tli. Krabbe). Framkvæmdarnefndin hefur komið sjer saman um, að geyma afganginn og nota hann seinna lil þess að kaupa handa hælinu góða bók, og hefur helst verið hugsað um nýju útgáfuna af Salmonsens Konversationlexikon — i því trausti að það, sem á vantar, muni bætast við þcgar til kemur. Fundarhöld Verkfræðingafjelags Islands. 45. fundur fjelagsins var haldinn 24. april 1918 á Ingólfs- hvoli. Ólafur Daníelsson dr. phil. flutti erindi það um xMalfattis problem«, sem prentað er (á þýsku) hjer að framan. 46". fundur var haldinn 30. október 1918 á Ingólfshvoli'. I.agði Th. Krabbe fram skýrslu um námskeið fyrir mælinga- menn, og hefur sú skýrsla verið prentuð í 3. hefti tímarits- ins. I)r. phil. fíjörn Bjarnason llutti erindi það um »ný- yrði«, sem birtist í þessu hefti. 47. fundur var haldinn 21. nóvember 1918 á Ingólfshvoli. Varaformaður mintist með nokkrum hlýjum orðum dr. Björns Bjarnasonar, sem andaðist 18. nóvember af lungna- bólgu; fjelagsmenn heiðruðu minning hans með því að standa upp. Steingrímur Jónsson rafmagnsverkfræðingur flutti erindi um útbreiðslu rafmagns hjer á landi. 48. fundur var haldinn 18. desember 1918 í Mentaskólan- um. Jón fíorláksson flutti erindi um útveggi ibúðarhúsa; á fundinn hafði verið boðið um 20 húsagerðarmönnum og öðrum byggingafróðum mönnum. Hjörlnr fíorsleinsson hefur sagt upp stöðu sinni sem bæjarverkfræðingur Reykjavíkur, frá 1. apríl næstk. L. M. Blok hefur sagt upp stöðu sinni sem aðstoðar- verkfræðingur við vegamálastjórnina frá 1. apríl næstk. fíórarinn Krisljánsson hefur fengið veitingu fyrir hafnar- stjórastöðunni i Rej'kjavík frá 1. janúar, hefur verið settur siðan 1. mars 1918. fíaul Smith, símaverkfræðingur, hefur hætt við það áform sitt að flytja til Noregs (sbr. 2. hefti bls. 28 þ. árg.) og er því vonandi að bæði Landssiminn og Verkfræðingafjelagið fái að njóta lians framvegis. Nýr fjelagsmaður. Sleingrímur Jónsson, cand. polyt, rafmagnsverkfræðingur, Stokkhólmi. Ýmislegt. Erlendir verk/rœðingar hafa nokkrir verið hjer á ferð síð- astl. sumar: G. Sœlersmoen, Kristiania, hefur dvalið við Þjórsá eins og nokkur undanfarin ár. II. C. E. Tillisch, efnafræð- ingur, frá Aarhus olíumyllu, hefur ferðast víða um land. sjerstaklega um norðurlandi. Schulz, námuverkfræðingur danskur, hefur starfað við kolanám í Stálfjalli. — fíorkell fíorkelsson cand. mag., kennari við gagnfræða- skólann á Akureyri, hefur verið skipaður lorstöðumaöur löggildingarstofnunar fyrir mæli- og vogartæki. ( 'Prenlvillur. í 3. hefti bls. 44, 1. dálk 9. línu 11. og 13. a. o., stendur 3250, 3750 og 3100 kr. hver km„ á að vera 32500, 375Ó0 og 31000 kr.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.