Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1962, Page 4

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1962, Page 4
38 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Með því að athuga manntöl, og þó sérstaklega fæðinga- skrár nemenda í daufdumbraskólum í Ástralíu, komst Lancaster (5) að því, að mun fleiri börn, síðar skráð daufdumb, höfðu fæðzt í lok fyrri rauðhunda-faraldra en annars var títt. Hins sama mátti og siá merki á Nýia- Sjálandi(7). En af sams konar upplýsingum, sem Lancaster(6) afl- aði sér frá fjölmörgum öðrum löndum, varð hann hvergi var slíkra „faraldra" að meðfæddu heymarleysi nema á Jslandi. Þar höfðu á tímabilinu 1935—1947 fæðzt 24 börn, er síðar voru vistuð í Málleysingjaskólanum, en af þeim voru 10 fædd á einu og sama ári, 1941 — síðara ári far- aldursins mikla, sem hófst 1940. Var þetta eini stórfarald- urinn af rauðum hundum á tímabilinu, en ekkert hinna áranna höfðu fæðzt fleiri en tvö börn, er síðar reyndust heyrnarlaus. Þessar upplýsingar voru fengnar hjá þáverandi land- lækni, Vilmundi Jónssyni, og var þeirra getið í Læknablað- inu fyrir nokkrum ámm(8). Næst gekk svo stórfaraldur íauðra hunda 1954—1955, og er vitað um 8 daufdumb börn, sem fæddust 1955. Að áeggjan Vilmundar landlæknis var nú ráðizt í að athuga þetta nánara, m. a. með tilliti til fyrri faraldra, og var jafnframt lögð áherzla á að greina milli meðfædds heyrnarleysis og áunnins, eftir því sem unnt reyndist. Kennsla daufdumbra á vegum hins opinbera mun hafa hafizt 1868. Önnuðust hana þar til ráðnir prestar (þó varla óslitið) fram til 1909, en þá fluttist kennslan til Reykjavíkur, er Daufdumbraskólinn (síðar Málleysingja- skólinn) var stofnaður(4). Má ætla, að síðan hafi skólinn haft afskipti af öllum daufdumbum börnum, hvaðanæva af landinu, sem náð hafa skólaaldri, enda eru þau skóla- skyld þar. Skólastjóri Málleysingjaskólans, Brandur Jónsson, leyfði góðfúslega afnot af gögnum skólans um nemendur,

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.