Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1962, Síða 9

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1962, Síða 9
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 43 þá hafði ekki tekizt að afla nægra upplýsinga um konur, sem eins var ástatt um, en ólu þó heilbrigð börn, enda þykir nú sýnt, að þetta mat sé mjög fjarri sanni. Ef kunnugt væri um fjölda og aldur kvenna, sem fengu rauða hunda í faröldrunum 1940—1941 og 1954—1955, mætti, með hliðsjón af fæðingarskýrslum, fara nærri um það, hve margar þeirra hefðu verið þungaðar, er þær tóku veikina, en þó ekki komnar lengra á leið en þrjá mánuði. Hefur verið áætlað, að svo hefði verið ástatt um 110 kon- ur 1940—1941 og 167 1954—1955, — ef skráning hefði aðeins náð til einnar konu af hverjum 10, sem fengu rauða hunda(9) — og hefði áhættan samkvæmt því reiknazt 5,5% fyrra skiptið og 5,8% hið síðara, en þá hefur verið gert fyrir því, að leyfi til fóstureyðingar var veitt 28 kon- um, er fengu rauða hunda 1954—1955. Nú kann það að virðast ósennilegt, að vanhöld séu svo mikil, að ekki komist nema tíundi hver rauðhunda-sjúkl- ingur á skrá. En þegar Asíu-inflúenzan gekk í Reykjavík 1957, bentu lauslegar athuganir til þess, að skráning hefði aðeins náð til eins sjúklings af hverjum sjö eða átta(10), og var þó talsvert veður gert af þessum faraldri, svo að nokkurn ugg vakti með mörgum. Þykir næsta ólík- legt, að skráning rauðra hunda gerist fyllri en þetta, en meiri líkur til hins gagnstæða. Sé nú samt sem áður gert ráð fyrir, að fimmti hver sjúklingur hafi komið á skrá, mundi áhættutalan reiknast 11% 1940—1941, en rúmlega 14% 1954—1955, er tekið hefur verið tillit til fóstureyðinga sem fyrr. Að munurinn verður hér miklu meiri en áður kom fram, mætti sýnast bending um, að það hafi verið nær hinu rétta, er miðað var við að tíundi hver sjúklingur hafi verið skráður, þótt út af fyrir sig hafi þetta ekki mikið sönnunargildi. Ef áhættan hefði verið svipuð og skráning sambærileg, er fyrri faraldrar gengu, hefði mátt búast við tveimur heyrnarleysingjum eftir faraldurinn 1915—1916 og ein-

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.