Ljósmæðrablaðið - 01.07.1962, Qupperneq 16
50
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
er góður árangur miðað við það sem venjulegt er hérlend-
is (Svíþjóð um 3%).
Fœðing fyrir tímann.
Það er mjög erfitt að áætla hve mörg börn fæðast
ófullburða þarna, þar sem ekkert er vitað um hve mikið
börnin vógu við fæðingu. Það eina sem vitað er, er hvort
börnin fæddust á 7—8 mánuði meðgöngutímans eða 9—
10. Eftir okkar mælikvarða getur því ekki verið um ófull-
burða börn að ræða, sem fædd eru á 9—10 mánuði með-
göngutímans. Margfalt fleiri börn virðast því fæðast ó-
fullburða hér í landi og ætti það að sjást á dánartölu
kornabarna. En þar sem lífsskilyrði eru mjög frumstæð í
Marocko er vart hugsanlegt að ófullburða barn geti lifað
þar nema stuttan tíma, og sést það einnig á því sem hér
fer á eftir.
Talið er í töflu 2 að 13 börn hafi fæðast á 7—8 mánuði
meðgöngutímans og verður sennilega að telja þau ófull-
burða. Dánartala þessara barna er einnig mjög há — 9
þeirra hafa fæðst andvana og af þeim f jórum sem eru lif-
andi fædd dó eitt á fyrstu viku. Hin börnin, sem talin eru
íædd fyrir tímann geta að sjálfsögðu hafa verið fullburða,
en þá ætti tala barna fæddra fyrir tímann að lækka, og er
það vart hugsanlegt þar sem tekið er tillit til syfilistil-
fella sem oft hafa ekki fengið neina læknismeðferð.
Tala barna fæddra fyrir tímann hjá þessum konum í
Marocko ætti því að vera um 1.7% og er það mjög athygl-
isvert þar sem sambærileg sænsk tala er 4.9%.
Pre-eclampsi (krampi vegna barnsfaraeitrana). 131
kona voru athugaðar með tilliti til eggjahvítu í þvagi
íalbuminuri), hækkaðs blóðþrýstings (hypertoni), bjúgs
(ödem) og krampa (pre-eclampsi). Þetta er að sjálfsögðu
alltof fámennur hópur til þess að semja skýrslur um
krampatilfelli hjá konum í Maroco, en samt getur verið
fróðlegt að athuga þennan flokk. Meira en helmingur