Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 23

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 23
LJÓSMÆÐRABLABBD 57 þroskast að staðaldri, eyðast og nýjar frumur koma í stað þeirra. „Ónýtu“ frumurnar má síðan finna í slími eða vökva holanna. Krabbaæxli, sem tekur að vaxa í slím- himnum holanna, orsakar frá byrjun fjölgun dauðra fruma, munurinn er aðeins sá að þar falla til fleiri ónýtar frumur en í heilbrigðum vef af sömu stærð. Sjúki vefurinn þróast hraðar og gefur þessvegna fyrr írá sér sjúkar frumur. Þessar krabbafrumur má síðan finna í vökva þeim, sem er í holunum. Þessi staðreynd er síðan notuð við rannsóknir og þá einkum á móðurlífskrabba. Slím eða vökvi er síðan athug- að í smásjá og sjást þá krabbafrumurnar. Þannig má greina sjúkdóminn á byrjunarstigi. Að lokum skal vakin athygli á nokkrum hættumerkj- um, sem bent geta til að um krabbamein sé að ræða: 1. Sérhvert sár, sem ekki grær. 2. Óvenjulegar blæðingar eða útferð. 3. Stöðugur hósti eða hæsi. 4. Sérhver breyting á vörtu eða fæðingarblett. 5. Ber eða fyrirferðaraukning í brjósti eða annarsstaðar. 6. Sérhver breyting á hægðum eða starfsemi þarmanna. 7. Langvarandi meltingarerfiðleikar eða erfiðleikar á að kyngja. Þýtt og endursagt úr grein norska læknisins dr. Harold Lie. J. J. LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Ritstjóri blaðsins er Jóhanna Jóhannsdóttir, Langholtsveg 56. 1 ritstjórn blaðsins eru ljósmæðurnar: Amdis Hólmsteinsdóttir, Steinunn Guðmundsdóttir, Ragnhildur Jónsdóttir.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.