Ljósmæðrablaðið - 01.07.1962, Síða 28
62
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Ný naflaklemma
Þegar skilið er á milli mun flestar ljósmæður enn sem
komið er nota bómullarþráð, sem hnýttur er um nafla-
strenginn. Þessi aðferð hefur margt til síns ágætis og er
auðveld í framkvæmd. Þó eru á henni vissir annmarkar,
og þessvegna hafi á seinni árum verið framleiddar ýmsar
tegundir af naflaklemmum. I Svíþjóð var farið að nota
nýja tegund af klemmum, ,,Steri-clam“, fyrir skömmu, og
hefur hún þótt reynast sérstaklega vel.
Það seih Steri-clam hefur fram yfir aðrar gerðir af
naflaklemmum er þetta:
Hún er búin til úr plasti, efni sem ekki er of hart, og
hlífir þannig húðinni og naflastrengnum.
Hún er seld í gerilsneyddum umbúðum, ein klemma í
hverjum pakka, og er þannig mjög létt að geyma klemm-
urnar sem eru ávalt tryggilega gerilsneyddar er til þeirra
á að taka.
Hún er færanleg, þannig að hægt er að breyta stillingu
eftir gildleika naflastrengsins. Hún er sett á og fest með
einföldu handtaki og án þess að nota þurfi töng.
Barnalæknar hafa látiðí ljósi ánægju sína með Steri-
clam, og telja að klemman hafa ýmsa fram yfir bómull-
erbandið. Það dregur til sín vætu og getur því auðveld-
lega sezt þar fyrir gerlagróður. Naflastrengurinn helzt
þurr með Steri-clam og dettur hann þessvegna oft fyrr af
t. d. eftir um það bil 5—6 daga. Þetta er ágætt fyrir mæð-
urnar, því margar þeirra hafa áhyggjur af því að nafla-
strengsbúturinn falli ekki af áður en þær fara af fæðing-
ardeildinni.
Steri-clam er notuð naflabindislaus, en það er tíma- og
fyrirhafnarsparnaður.
Þýtt úr sænska ljósmæðrablaðinu J. J.