Ljósmæðrablaðið - 01.04.1966, Blaðsíða 13
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
37
Barnið var kælt niður í 20 stig fyrir
hjartauppskurð
í vor var gerður mjög merkur uppskurður á sex mán-
aða sveinbarni á Háskólasjúkrahúsinu í Seattle. Hjarta
litla drengsins var stöðvað í 32 mínútur og líkami hans
kældur niður í 20 stig á Celsius á meðan læknarnir gerðu
við tvo meðfædda hjartagalla.
Litli drengurinn, Benjamin Capps, hafði aðeins þyngst
um tvö pund frá fæðingu og þrisvar sinnum verið lagður
á sjúkrahúsið. Við rannsóknir kom í ljós, að hann hafði
tvo mjög alvarlega hjartagalla. Gat var á hjartaveggn-
um milli efri hjartahólfa hans og lungnaæðarnar fluttu
súrefnisríkt blóð aftur frá lungunum inn í hægra hjarta-
hólfið í staðinn fyrir það vinstra. Báðir þessir gallar voru
meðfæddir.
Ekkert gat bjargað barninu nema uppskurður, en óttazt
var, að það þyldi ekki að við það væri notuð hjartalungna-
vél. Læknarnir ákváðu því að nota aðferð, sem fundin
hefur verið upp í Japan, en hún byggist á þvi, að líkams-
hita sjúklingsins er komið niður 1 20 stig, hjartað er
stöðvað og aðgerðin framkvæmd á því. Fyrst var Benjy
litli settur niður í venjulegan bala, sem fylltur hafi verið
með plastpokum með ísmolum 1. 27 mín. síðar var líkams-
hitinn farinn að nálgast 20 stig. Skurðlæknarnir opnuðu
brjóstholið stöðvuðu hjartað með því að binda fyrir aðal-
slagæðina, og dæla saltupplausn (Kalium magnesíum)
inn í hjartað.
Aðgerðin á hjartanu, sem var minna en tenniskúla, tók
32 mínútur. Hjarta Benjy var síðan núið þar til það tók
&ð slá að nýju, en um stund var sérstakt tæki sett í sam-