Ljósmæðrablaðið - 01.07.1967, Blaðsíða 6
150
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
verið að nota lyf, sem búin eru til úr þessum frumefnum,
til þess að koma af stað fæðingum. Sandoz ráðleggur að
gefa partergine við sóttleysi (inertia uteri) árið 1961, og
skammturinn á að vera fyrst til reynslu 5 dropar, síðan,
ef það ber ekki árangur, 5-10 dropar, eftir hálfa til heila
klukkustund. Til þess að framkalla fæðingu er gefinn
sami reynsluskammtur og síðan 10 til 15 dropar á hálf-
tíma til klukkutíma fresti, í mesta lagi þrisvar sinnum.
Við höfum fengið á fæðingardeildina nokkrar konur, sem
hafa fengið þess konar lyfjameðferð í heimahúsum, að
því er virðist til þess að framkalla fæðingu hjá konum,
sem áhtið var, að væru komnar fram yfir réttan tíma.
Hjá þessum konum líða samdrættir venjulega fljótt frá,
og síðan fer fæðingin seinna sjálfkrafa af stað, en eitt til-
felli kom á deildina með þeim afleiðingum, að barnið var
andvana, þegar það fæddist:
Deildarnr. 28857/68. Para n, gravida m og 22 ára.
Fyrri fæðingarnar höfðu báðar verið eðlilegar og lifandi
börn, hvort tveggja um 16 merkur að þyngd. Komið til
mæðraskoðunar 6 sinnum og aldrei fundizt neitt óeðlilegt
við þvagrannsóknir, eins blóðþrýstingur verið 130—140/
60—85. Síðasta skoðun var 19/4 ’63. Þann dag var henni
gefið partergine, sem hún tók um kvöldið kl. 21.30, kl.
22.30 og kl. 23.30, alls þrisvar og 25 dropar í einu, meiri
skammt en læknirinn hafði tiltekið, því að hún vildi vera
viss um, að fæðingin færi af stað. Samdrættir kom á 2—3
mínútna fresti, en samt var stöðugur spenningur í leginu
að hennar eigin sögn, enda kona, sem búin var að fæða
tvisvar og þekkti vel léttasótt. Þann 20/4 kl. 3.00 kom
konan á deildina, og eru nokkrar hvíldir milli hríðanna og
fósturhljóð talin heyrast. Kl. 6.00 eru óreglulegir krampa-
samdrættir, og legið linast aldrei eðlilega milli hríðanna,
og fósturhljóð heyrast ekki. Gefið er inj. pethidine mg
100 i.m. Exploratio rectalis: legop 1—2 cm og þykkar
brúnir. Aðeins næst upp í höfuð og ekki að finna spennt-