Ljósmæðrablaðið - 01.07.1967, Qupperneq 14
158
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
fyrir sjúkdómsgreiningu og læknishjálp, því að batahorf-
ur eru að jafnaði þeim mun betri sem sjúkdómurinn er
fyrr greindur.
Mörg ár eru síðan farið var inn á þessa braut i Banda-
ríkjunum, og síðan 1952 hefur landssamband danskra
krabbameinsfélaga beitt sér fyrir því, að konur tækju
upp þessa aðferð og gefið út leiðbeiningar þar að lútandi.
Það hefur verið sagt með nokknun sanni, að hendur
konunnar sjálfrar og spegillinn hennar gætu verið eitt þýð-
ingarmesta vopnið í baráttunni gegn krabbameini í brjósti.
Reglubundin sjálfsathugun á brjóstum byggist á:
1) Að skoða brjóstin.
2) Að þukla brjóstin.
1. Standið fyrir framan spegil, naktar niður að mitti.
Hafið handleggina fyrst niður með síðunum, en lyftið síð-
an báðum höndum upp fyrir höfuð. Jafnframt athugið
þér, hvort brjóstin eru eins að útliti og hvort þau standa
jafnhátt. Brjóstin geta verið mismunandi að stærð og
lögun, staðið mishátt og báðar brjóstvörturnar inndregn-
ar (holubrjóst) án þess nokkuð sé að. Þér athugið, hvort
nokkuð svæði á brjóstinu er inndregið, sérstaklega hvort
brjóstvartan er inndregin, hvort nokkuð blæðir úr brjóst-
vörtunni, hvort sár er á henni eða óeðlilegt hrúður kring-
um hana. Allt þetta geta verið hættumerki og því ástæða
til að leita strax til læknis.
2. Þessu næst skuluð þér þukla hvort brjóstið fyrir
sig. Bezt er að gera þetta liggjandi, og á þetta einkum
við séu brjóstin stór. Til þess að koma í veg fyrir að
brjóstin falli til hliðar við brjóstkassann, leggið þér kodda
undir herðablaðið þeim megin, sem þér athugið. Með því
að hugsa sér lárétta og lóðrétta línu dregna gegnum
brjóstvörtuna, er brjóstinu skipt í fjóra hluta. Hvern
þessara hluta skal þukla fyrir sig. Vinstra brjóstið þuklið
þér með hægri hendi og hægra brjóstið með vinstri hendi.