Ljósmæðrablaðið - 01.07.1967, Blaðsíða 15
L JÓ SMÆÐR ABLAÐIÐ
159
Fyrst þuklið þér innri brjósthlutana tvo og hafið hand-
legginn þeim megin sem þér athugið fyrir ofan höfuðið.
Þuklið þannig, að þér þrýstið flötum lófanum létt á brjóst-
ið þvert á lengdarás líkamans og finnið þannig brjóstvef-
inn milli fingranna og brjóstkassans. Síðan þukhð þér á
sama hátt ytri helmingana tvo, en hafið þá handlegginn
niður með síðunni, því að það hindrar enn frekar, að
brjóstið falli til hhðar.
Loks þuklið þér alla fjóra hluta brjóstsins milli þum-
alfingurs og hinna fjögurra fingra handarinnar, fyrst
liggjandi, en síðan uppréttar til enn frekara öryggis.
Finnið þér við þessa athugun eitthvað athugavert, t.d.
fyrirferðaraukningu í brjóstinu, eigið þér að leita læknis.
I flestum tilfehum er um góðkynja breytingar að ræða,
en eigi að síður skulið þér ekki fresta því að vitja læknis.
Reynist þetta við læknisrannsókn góðkynja breytingar,
vitið þér, að ekkert er að óttast, en finnið þér síðar nýj-
ar breytingar, skuluð þér leita læknis aftur.
Ahar konur, sem orðnar eru þrítugar, ættu að fram-
kvæma framangreinda sjálfsathugun, einu sinni í mánuði
og er heppilegasti tíminn fljótlega eftir blæðingar. Konur,
sem hættar eru að hafa á klæðum, geta miðað við ákveð-
inn mánaðardag.
Athugunin skal gerð reglulega og af nákvæmni, en
ekki oftar en einu sinni í mánuði. Tilgangur sjálfsathug-
unarinnar er að veita konunni aukið öryggi. Athugun í
tíma og ótíma getur aftur verkað gagnstætt.
Læri konur að framkvæma shka sjálfsathugun og beiti
henni reglulega, jafnframt því sem þær íhuga þetta vanda-
mál af heilbrigðri skynsemi og með sjálfsaga, þá er þessi
rannsóknaraðferð vissulega stórt spor í rétta átt í bar-
áttunni við krabbamein í brjósti.
Sigurður Sigurðsson, héraðslæknir, Siglufirði, þýddi
þessar leiðbeiningar að beiðni Krabbameinsfélags Islands,
sem gaf leyfi til birtingar í Ljósmæðrablaðinu.