Ljósmæðrablaðið - 01.07.1967, Side 17
LJ Ó SMÆÐR ABLAÐIÐ
161
of holdmiklir eftir þrítugt eiga miklu fremur á hættu
en magrir meðbræður þeirra að deyja fyrir aldur fram úr
hjartasjúkdómum, heilablóðfalli, lifrar- og nýrnasjúkdóm-
um og sykursýki.
Það er óhollt, óþægilegt og ljótt að vera feitur. Flestir
geta þó komist hjá offitu, sem betur fer og er þá fyrsta
boðorðið: Borðið minna.
Það getur verið nægilegt að sleppa einni máltíð á dag
eða borða minna við hverja máltíð. Er þá um að gera
að borða það sem ,,ekki fitar“, þ.e. mat með sem fæstum
hitaeiningum eins og t.d. ávexti, grænmeti, magurt kjöt,
magran fisk, mjólk og brauð. Kyrrsetumenn þarfnast
nægilegrar HREYFINGAR: gönguferða, skíðaferða, sunds
— helzt daglegrar leikfimi eða léttra æfinga.
Byrjið tímanlega.
Það er miklum mun auðveldara að halda eðlilegum lík-
amsþunga en grennast. Oft eru tímamót um þrítugt og
hættir mönnum þá til að þyngjast um of úr því, ef ekki
er að gáð.
Að vera of magur.
Margir vilja vera grannir til að tolla í tízkunni. Þá
vill gleymast að það er óhollt að grennast mikið á stutt-
um tíma og getur verið beinlínis hættulegt. Sérstaklega
á ungt fólk, sem ennþá er í vexti, að varast slíkt.
Heilbrigður og fallegur líkami er hvorki magur né feit-
ur heldur í eðlilegum holdum.
Tölurnar sýna MEÐALÞUNGA — eðlilegan þunga
miðað við hæð, og frávik 10% uppávið og niðurávið. All-
ar þessar tölur teljast eðlilegur þungi. Ástæða getur verið
til athugunar ef komið er út fyrir þessar tölur, en þá má
hafa í huga að beinbygging — hin almenna líkamsbygg-
ing hefir þar mikið að segja. Beinasmár og fíngerður
líkami er venjulega léttari en þreklegri maður jafn há-
vaxinn. Öruggast er að vikta sig nakinn. Ef fólk viktar