Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Síða 3

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Síða 3
Skýrsla stjórnar LMFI 1974 Á árinu voru haldnir 3 félagsfundir, 7 stjórnarfundir og jólafagnaður, hinn árlegi bazar, sem haldinn var fyrir áramót svo og kökubazar. Hann var haldinn í apríl og ágóði af honum sérstaklega ætlaður til að koma á móts við ýmsan tilfailandi kostnað viðkomandi aðalfundinum hér. Ákveðið var á síðasta aðalfundi félagsins, 3. júní 1973, að halda fundinn á Akureyri samlcvæmt tillögu Norð- urlandsdeiidar félagsins. Þessari tillögu var strax tekið með fögnuði af fundarkonum og í því sambandi má nefna, að Norðurlandsdeildin bauð fram að annast allan undir- búning fundarins þar nyrðra. Norðlenzku ljósmæðurnar hafa sýnt mikinn félagsþroska í störfum sínum frá stofn- un deildarinnar. Stjórnin metur mjög mikils störf henn- ar svo og þetta frumkvæði til þessa fundarhalds. Þetta mun í fyrsta sinn, sem Ljósmæðrafélag íslands þingar utan höfuðborgarinnar og það er okkur mikil ánægja, að það skuli einmitt vera hér á Akureyri í höfuðstað Norð- urlands. Fleira en eitt stuðlar að því að gera þennan fund sérstæðan. Eins og ég sagði, í fyrsta sinn utan Reykja- víkur, Ljósmæðrafélag Islands, eitt elzta íélag innan heil- brigðisstéttanna á 55 ára afmæli, því það var stofnað 19. maí 1919, að því ónefndu, að nú er það herrans ár 1974, sem er 1100 ára afmæli íslandsbyggðar. Ljósmæðrastétt- in vill á sinn hátt setja svip á hátíðahug íslenzku þjóð- arinnar í tilefni af þessu afmæli, m.a. með því að mæta til þessa fundar félagsins nær allar í íslenzkum þjóðbún-

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.