Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Qupperneq 4
36
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
ingi, en þeirri hugmynd kom Margrét Þórhallsdóttir for-
maður Norðurlandsdeildar á framfæri á síðasta aðalfundi.
Fundur, sem haldinn var 11. október 1973, var tileink-
aður sem og fyrri haustfundir nýútskrifuðum ljósmæðr-
um, sem sérstaklega voru boðnar á þennan fund. Þær
voru boðnar velkomnar í félagið og óskað allra heilla í
starfi, afhent lög Ljósmæðrafélags Islands og að gjöf
félagsnælan. Þetta var ungur og vasklegur hópur og sér-
stök ánægja að fá þessar ungu og nýbökuðu ljósmæður
til starfa í félagið.
Jólafundurinn var haldinn að Hótel Holti um miðjan
desember. Formaður nefndarinnar var Hulda Jensdóttir
og með henni Hanna Antoníusdóttir og Sjöfn Eyfjörð.
Fundurinn var einkar ánægjulegur. Þar var fræðsla og
kynning og sérstök ástæða er til að nefna myndasýningu
Huldu Jensdóttur og málflutning hennar með myndunum,
auk þess stjórnaði hún fundinum. Stjórnin telur jólafundi
þátt, sem við ættu að hafa fastan lið og leggja alúð í.
Þann 28. janúar 1974 var haldinn fundur að Hallveig-
arstöðum. Fundarefnið var kjarasamningarnir, en í samn-
inganefnd Ljósmæðrafélags íslands höfðu verið kjörnar
Steinunn Finnbogadóttir, Halldóra Ásgrímsdóttir, Auð-
björg Hannesdóttir, Selma Vilhjálmsdóttir og Anna Harð-
ardóttir, en auk þess var formaður og Auðbjörg Hannes-
dóttir í aðalsamninganefnd BSRB.
Á þessum fundi voru lögð drög að kröfugerð og for-
maður lagði til að fá lögfróðan og vanan samningamann
til að yfirfara kröfugerðina, áður en hún yrði send fjár-
málaráðherra til meðferðar fyrir hönd ríkissjóðs, og urðu
þá smábreytingar á henni. Þegar á þessum fundi hafði
formaður efnt til fundar, sem haldinn var á Fæðingar-
heimili Reykjavíkur. Þangað var boðuð stjórn félagsins,
samninganefnd BSRB, starfsnefnd BSRB, skólanefndin
og fulltrúar frá ýmsum vinnustöðum þ.á.m. héraðsljós-
móðir Anna Sveinbjörnsdóttir frá Sandgerði. Þarna fóru