Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Side 8
40
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
ráð er fyrir gert í frumvarpinu og teljum, að ekkert knýi
á að ganga svo langt í frjálsræði að svo stöddu og eigum
við þar fyrst og fremst við 1. til 9. gr. Sú grein, ef að
lögum yrði, fellir mikla málalengingu, sem á eftir kemur
í frumvarpinu, því þar er gengið það lengsta sem hægt
er við rýmkun löggjafar um fóstureyðingar. Því teljum
við, að 1. tl. 9. gr. eigi að fella burt, en 2. tl. með undir-
liðunum a-f standi. Samkvæmt eðli málsins væntum við
þess, að um aðstæður, sem eiga við liðina d og e verði
fjallað sérstaklega með félagsleg sjónarmið í huga og ekki
eingöngu af læknum.
Varðandi 10. gr. Við viljum nokkra breytingu á 10. gr.
að hún hljóði svo: Fóstureyðing, sem leyfð er samkvæmt
lögum þessum, skal framkvæmd eigi síðar en í lok 12.
viku. Frávik frá þessu ákvæði eru aðeins heimil af ótví-
ræðum læknisfræðilegum eða mannúðar ástæðum.
Við gerum ekki athugasemdir við frumvarpið um ófrjó-
semiaðgerðir, enda teljum við þar margt til bóta, en vilj-
um koma því sjónarmiði okkar á framfæri, að eigi skuli
veita leyfi til ófrjósemiaðgerða, ef viðkomandi er ekki
fullra 30 ára, nema um alvarlega sjúkdóma sé að ræða
eða annað, sem að læknisráði mæli eindregið með, að að-
gerð sé framkvæmd.
Að lokum viljum við undirstrika og leggja höfuðáherzlu
á aukna fræðslu og ráðgjöf og hefja skipulegar fram-
kvæmdir í þeim efnum sem fyrst.
F.h. Ljósmæðrafélags Islands
Steinunn Finnbogadóttir
formaður