Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Qupperneq 11

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Qupperneq 11
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 43 landinu. Því fer stjórn Ljósmæðrafélags Islands þess á leit við yður, herra fjármálaráðherra, að þeir hlutist til um, að þessi lög verði úr gildi numin, en í stað þess verði felld inn í lög um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins ákvæði, sem tryggi héraðsljósmæðrum sömu réttindi og öðrum starfsmönnum ríkisins sbr. lög nr. 29, 29. apríl 1963 um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Ljósmæðrafélag íslands leggur mikla áherzlu á það, að þér, herra fjármálaráðherra, leggið fram þegar á þessu þingi stjórnarfrumvarp, sem leiðrétti þetta ranglæti, sem héraðsljósmæður hafa búið við um langan aldur. Greinargerð. Héraðsljósmæður einar eiga aðild að Lífeyrissjóði ljós- mæðra frá 1938. Þessi sjóður er ekki verðtryggður. Greiðsl- ur ljósmæðra eru í samræmi við laun þeirra, en þær eru lægst launuðu embættismenn á landinu og framlag ríkis- ins fer þar eftir. Þær ljósmæður, sem njóta nú lífeyrisréttinda í lífeyris- sjóðum starfsmanna ríkisins og/eða bæjarfélaga, vinna á heilbrigðisstofnunum, samkvæmt ákveðnum launaflokk- um. Þær hafa því nú þegar hlotið þau lífeyrisréttindi, sem félagið óskar eftir til handa öllum ljósmæðrum landsins. Stjórn Ljósmæðrafélagsins telur, að eðlilegast sé, að héraðsljósmæður falli undir sömu ákvæði og um getur í lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins í 3. gr., þar segir m.a., að sjóðfélagar séu allir þeir, sem skipaðir eru, settir eða ráðnir í þjónustu ríkisins og taki ekki minna en hálf laun. Hvað héraðsljósmæðrum viðkemur, eru þær skipaðar eða ráðnar í ljósmæðraumdæmi og taka full laun, en þessi fullu embættislaun þeirra eru svo lág, að þær eru ekki viðurkenndar sem ríkisstarfsmenn, sem njóta megi rétt- inda eins og þeir, sem hálf laun taka. Ríkið greiðir % hluta launa þeirra og viðkomandi sveitarfélag Vá

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.