Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Qupperneq 12
44
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
hluta. Réttindaskerðing þeirra virðist einvörðungu byggj-
ast á hinum lágu launum, því að embættisskyldur þeirra
eru ótvíræðar og afdráttarlausar og vísast í því efni til
ljósmæðrareglugerðar frá 23. október 1933. Rétt er að
geta þess, að héraðsljósmæður njóta ekki neinna orlofs-
réttinda, þó lög mæli svo fyrir um alla þegna landsins.
Virðingarfyllst
f.h. Ljósmæðrafélags fslands
Steinunn Finnbogadóttir, formaður
Alþjóðlegt mót Ijósmœðra
í Lausanne í Sviss, júní 1975
f bréfi til LMFÍ frá Alþjóðasambandi ljósmæðra er
skýrt frá væntanlegu móti í tilefni 17. alþjóðaþings sam-
bandsins. Þingið fer fram í Palais de Beulieu í Lausanne,
Sviss, dagana 21.—28. júní n.k.
Hvert aðildarfélag alþjóðasambandsins (I.C.M.) hefur
rétt á að senda tvo fulltrúa með atkvæðisrétti á þingið,
en svissneska sambandið væntir þess jafnframt að sjá sem
flestar ljósmæður, frá sem allra flestum löndum heims, í
þeirra litla og fallega landi.
í bréfinu er skýrt frá því að allar ræður og það sem
fram fer á þinginu verður samtímis þýtt yfir á 5 tungu-
mál: Ensku, frönsku, þýzku, ítölsku og spönsku.
Greint er frá því að í Lausanne sé fjöldi hótela í mis-
munandi verðflokkum, og upplýsingar þar um verði að
finna á eyðublaði, sem væntanlegir þátttakendur fái sent.