Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Síða 17
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
49
Launaskrá héraðsljósmœðra
Með tilvísun til gjaldskrár sem birtist í síðasta blaði
vill stjórnin vekja athygli héraðsljósmæðra á, að þær geta
stuðst við gjaldskrána er þær taka laun fyrir hin ýmsu
störf, sem þær eru kvaddar til og gegna, sem þó heyra
ekki beint undir ljósmæðrastéttina.
Ennfremur er þess að geta, að tímakaup þeirra ljós-
mæðra er starfa innan BSRB er nú skv. nýjustu tölum kr.
550.82 f. næturvinnu og kr. 331,82 f. dagvinnu.
Einnig birtum við nú nýjasta útreikning Fjármálaráðu-
neytisins á grunnlaunum til héraðsljósmæðra, og launa-
hækltunin, sem heimuluð var í síðustu samningum, er
komin inn í þær tölur.
Leiðrétting
I greinargerð, sem fylgdi bréfi til heilbrigðisráðherra
dags. 7. okt. 1974, og birt var í síðasta blaði féll brott hjá
mér ein lína. Biðst ég afsökunar á þessu og birti hér grein-
argerðina á ný, rétta.
Hildigunnur Ólafsdóttir
Greinargerð
Nefndin, sem skipuð var af heilbrigðisráðherra, til að
endurskoða lögin um Ljósmæðraskóla Islands, er nú skip-
uð fulltrúa frá heilbrigðisráðuneytinu, fulltrúa kennara
við Ljósmæðraskóla Islands og einum nemanda skólans.
Til samanburðar má geta þess, að nefnd, sem mennta-
málaráðherra skipaði til að endurskoða lög um Hjúkrun-