Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Page 19

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Page 19
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 51 varp er fram komið. Þörf á breytingu þessarar löggjafar er fyrir löngu orðin mjög brýn — enda um rúmlega 40 ára löggjöf að ræða. Eins og fram kemur í greinargerð frumvarpsins þá var það flutt á þingi 1971—72 en vísað til ríkisstjórnarinnar á þeim forsendum að nýrra ljós- mæðralaga væri að vænta, enda var endurskoðun ljós- mæðralaga þá í höndum nefndar sem heilbrigðismálaráð- herra skipaði og skilaði nefndin uppkasti að frumvarpi 1. marz 1973, en frumvarpið var á þann veg að ráðherra lagði það aldrei fram. Ljósmæðrafélag Islands mælti ekki með frumvarpinu, en leitaði þá sterklega eftir því að í hinni nýju löggjöf um heilbrigðisþjónustu kæmi ákvæði um störf ljósmæðra á heilsugæslustöðum sem síðan varð að lögum og lýsir fé- lagið ánægju sinni yfir því lagaákvæði. Hin lagalega staða ljósmæðrastéttarinnar er á svo margan hátt óviður- kvæmileg að eigi verður lengur við unað. Það er flutn- ingsmönnum greinilega ljóst þó að í þessu frumvarpi sé ckki tekið á fleiri þáttum. Ljósmæðrafélag íslands telur það eitt það mikilvæg- asta til handa stéttinni ef 4. gr. yrði að lögum eins og hún er orðuð í frumvarpinu, það er: Launakjör skipaðra ljósmæðra skulu ákveðin með kjarasamningum eða af kjaradómi á sama hátt og laun opinberra starfsmanna sbr. lög nr.: 55 28. apríl 1962. Frumvarpið gerir ráð fyrir að laun skipaðra ljósmæðra í kaupstöðum skuli greidd mánaðarlega úr bæjarsjóði. Þetta telur félagið góða skipan mála, en vill mæla með sömu meðferð varðandi laun ljósmæðra í umdæmum utan kaupstaða. Sennilega eru ljósmæður eina stéttin í landinu sem ekki hefur fengið orlofsréttindi að lögum — því fagnar félagið alveg sérstaklega ákvæðum þar um í frumvarpinu. I 4. málsgr. 1. gr. er atriði sem Ljósmæðrafélag Islands getur ekki sætt sig við, það er að: Skipun ljósmæðra sem

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.