Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Page 21

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1975, Page 21
LJÓSMÆÐRABL AÐIÐ 53 reist hús, á naflastrengurinn að verða vafinn um háls barnsins. Ef hún bcrðar úr skarðíláti, eða með skörðóttum spæni, þá fær barnið skarð í vör. Ef hún sér, eða lætur pott á hlóðir þannig, að eyrun snúa beint upp að og fram að, þá verða eyru barnsins á skökkum stað. Kaffi var álitið hríðaukandi (en hafi svo verið mun ,,dropi“ hafa verið látinn út í það). Gott brennivínsstaup var álitið hafa sömu verkanir. Að borða hrá egg átti að herða sóttina. Einnig að drekka nýmjólk, sem mjólkuð var á flösku, því mjólkin átti ekki að koma undir bert loft. Ef konan borðaði fisk mest matar, átti barnið að verða heimskt. Ef hún borðaði mest megnis mat úr jurtaríkinu, átti barnið að verða gáfað. Aðalfundargerð LMFÍ, 1974 Aðalfundur Ljósmæðrafélags Islands var haldinn laug- ardaginn 8. júní 1974, kl. 14,15, að Hrafnagilsskóla í Eyjafirði. Formaður Norðurlandsdeildar LMFÍ, Margrét Þórhalls- dóttir flutti fyrst inngangsorð. Hún bauð ljósmæðurnar velkomnar á þennan fyrsta aðalfund félagsins, sem hald- inn væri norðanlands. Lýsti hún ánægju sinni yfir að sá draumur Norðurlandsdeildar væri orðinn að veruleika Einnig gat hún þess að þetta væri merkisár, því félagið væri 55 ára, og svo væri þjóðhátíð Islendinga. Síðan flutti hún Fjallkonuljóð Davíðs Stefánssonar. Formaður, frú Steinunn Finnbogadóttir, setti síðan fundinn. Þakkaði

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.